„Hamingjan, hún er hér“

Tugþúsundir eru í miðbæ Reykjavíkur þar sem tónleikar Rásar 2 á menningarnótt hafa verið í algleymi. „Hamingjan, hún er hér“ var sungið rétt áður en flugeldasýningin hófst.
Fjölmenni var á tónleikunum í miðbæ Reykjavíkur þar sem tónlistin glumdi og allra augu á sviðinu. Það breyttist hins vegar þegar flugeldasýningin hófst og augu fólks beindust til himins.
Dagskránni lýkur með flugeldasýningunni. Eftir það má gera ráð fyrir að tugþúsundir Menningarnæturgesta streymi úr miðbæ Reykjavíkur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er með mikinn viðbúnað til að stýra umferð í og við miðbæ Reykjavíkur. Jafnframt hefur öllum strætisvögnum Strætó bs. sem voru í gangi í kvöld verið stefnt niður í miðbæ til að taka upp farþega og koma þeim til síns heima. Jafnframt má búast við fjölda fólks á gangi í góða veðrinu.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













