„Ekki hægt að bera mig saman við Kolbein ennþá"

Heimasíða Heerenveen
Alfreð Finnbogason hefur skrifað undir 3 ára samning við hollenska knattspyrnufélagið Heerenveen eftir að viðræður Lokeren og Helsingborgar runnu út í sandinn.
Heerenveen undir stjórn Marco van Basten greiddi Lokeren 500 þúsund evrur fyrir Alfreð, 74 milljónir króna. Alfreð skoraði 12 mörk í 17 leikjum sem lánsmaður hjá Svíþjóðarmeisturum Helsingborgar auk þess að leggja upp mörk.
Alfreð var kynntur til sögunnar á blaðamannafundi hjá Heerenveen á fimmtudag.
„Lítið bara í kringum ykkur, er þetta ekki fallegt? Leikvangur Helsingborgar er mun minni, þar voru bara 15 þúsund manns á leik. Hér byrja margir ungir leikmenn og fara svo til stærri félaga. Rétt eins og ég vonast til að gera." sagði Alfreð.
Alfreð var spurður út í liðsfélaga sinn í íslenska landsliðinu, Kolbein Sigþórsson sem er aðalmarkakoskorari Ajax.
„Það er ekki hægt að bera mig saman við Kolbein eins og er. Hann spilar hjá Ajax og þá þarftu að vera í hæsta gæðaflokki. Ég vona að ég geti orðið það líka. Ég gerði hárrétt með að fara til Heerenveen." sagði Alfreð.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is













