„Allt grundvallað á Biblíunni“

Brekkuskóli. Mynd af www.brekkuskoli.is
Snorri Óskarsson, grunnskólakennari á Akureyri segist hvorki hafa brotið grunnskólalög né siðareglur kennara með skrifum á bloggsíðu sinni. Hann segir viðbrögðin við skrifunum koma sér á óvart.
Snorri Óskarsson, oft kenndur við Betel, hefur verið kallaður á fund skólayfirvalda á Akureyri á morgun, vegna skrifa sinna um samkynhneigð á bloggsíðu sinni. Snorri kennir unglingum í Brekkuskóla en eitt foreldri þar sagði í fréttum RÚV að ummæli Snorra væru ógeðfelld og ekki sæmandi barnaskólakennara. Snorri er ekki sammála þessu.
„Það sem ég setti í bloggið það er biblíulega skýringin. Þetta er allt grundvallað á Biblíunni og því sem hún segir um þessi mál. Sko ég skil ekki af hverju fólk kallar þetta fordóma og notar svona stór orð um mig að ég hati og þess háttar. En það er alveg greinilegt að þessi málaflokkur er svo viðkvæmur að ef þú ert ekki sammála almenningsálitinu, þá finnurðu ekki fyrir neinu umburðarlyndi.“
Snorri segist hafa verið kallaður á tvo fundi hjá skólayfirvöldum vegna skrifa sinna, annan árið 2010 og hinn fyrir viku. Á þeim síðarnefnda var honum tjáð að ummæli hans stríddu gegn mannauðsstefnu Akureyrarbæjar, grunnskólalögum og siðareglum kennara. Snorri skilaði greinargerð um málið til skólayfirvalda í dag þar sem hann neitar þessum ásökunum. Snorri mætti hvorki til vinnu í dag né í gær. Skólayfirvöld hafa einnig beðið hann að taka sér frí á mánudag vegna málsins.
„Tjáningarfrelsið er lögvarið í stjórnarskrá Íslendinga. Ef skólinn ætlar að fara að halla þeim rétti þá þarf hann annaðhvort að borga töluvert hærri laun eða láta vera.“
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







