„Afturganga“ blekkti ekkjur

Lögregla var kölluð að heimili fjölskyldu Khumalo þegar aðdáendur hans flykktust þangað.
Lögreglan í Suður Afríku hefur handtekið mann sem segist vera einskonar afturganga þjóðlagasöngvarans Khulekani Khumalo, sem lést fyrir þremur árum.
Maðurinn gaf sig fram við aðdáendur og fjölskyldu söngvarans á dögunum og sagðist hafa verið í haldi galdralæknis síðustu ár. Seiðkarlinn hefði lagt á hann álög og lokað hann inni í helli með uppvakningum. Maðurinn vildi skipuleggja tónleika og gefa út nýjar plötur og stór hópur aðdáenda safnaðist saman fyrir utan hús Khumalos til að hylla hann og bjóða hann velkominn aftur í tölu lifenda.
Efasemdir innan fjölskyldu hans leiddu hins vegar til lögreglurannsóknar. Tvær ekkjur söngvarans segjast sannfærðar um að hann sé risinn frá dauðum en rannsókn á fingraförum hefur leitt í ljós að svo er ekki.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Tilkynna um bilaða upptöku







