- » www.ruv.is
- » Fréttir
- » Formúla 1
![]() 23.12.2009 13:48
Schumacher staðfestir endurkomuÞýski ökuþórinn Michael Scumacher staðfesti í dag þann orðróm að hann snúi aftur í Formúlu eitt kappaksturinn á næsta ári og muni aka fyrir Mercedes. Schumacher sem hefur orðið heimsmeistari ökumanna sjö sinnum, hætti í Formúlunni eftir keppnistímabilið 2006, en hefur nú tilkynnt um endurkomu sína. Hann verður 41 árs í byrjun janúar.
|
|
23.12.2009 07:15
Schumacher aftur í FormúlunaErlendir fjölmiðlar fullyrtu í gærkvöld að þýski ökuþórinn Michael Schumacher myndi snúa aftur í Formúlu eitt kappaksturinn á næsta keppnistímabili. Það sem vekur þó athygli í fréttunum er það að Schumacher er sagður hafa gert samning við Mercedes liðið, en ekki Ferrari, þar sem hann ók lengst fyrir.
|
![]() 04.12.2009 11:57
Räikkönen í ralliðFinninn Kimi Raikkönen, fyrrverandi heimsmeistari í Formúlu eitt akstri, hefur samið við Citroenliðið um að aka fyrir það í heimsmeistarakeppninni rallakstri á næsta ári. Raikkönen, sem varð heimsmeistari með Ferrariliðinu í hitteðfyrra, mun keppa fyrir minna lið Citroen sem sem teflir venjulega fram ungum og efnilegum ökuþórum, en Raikkönen fellur varla undir þá skilgreiningu, enda orðinn þrítugur. Hann missti sæti sitt hjá Ferrariliðinu til Spánverjans Fernandos Alonsos, sem er tvöfaldur meistari. Hann var talinn mögulegur arftaki James Button hjá Mercedes en nú er ljóst að svo verður ekki. Frakkinn Sebastien Löb, ökumaður Citroenliðsins, hefur orðið heimsmeistari í rallakstri sl. 6 ár.
|
27.11.2009 18:41
Räikkonen íhugar að keppa í ralli
Finnski ökuþórinn Kimi Räikkonen er nærri því að semja við Citroen um að keppa fyrir liðið í heimsmeistarakeppninni í rallakstri á næsta ári. Þetta kemur fram á heimasíðu heimsmeistaramótsins í dag. 19.11.2009 15:50
Vettel ökumaður ársins
Þó Jenson Button hafi orðið heimsmeistari ökumanna í Formúlu eitt kappakstrinum þetta árið varð hann þó aðeins í öðru sæti í kosningu liðsstjóra keppnisliðanna um ökumann ársins. Button fékk 67 stig í kosningunni en Sebastian Vettel fékk flest stig í kosningunni eða 76 stig.
18.11.2009 14:18
Button til McLaren
Heimsmeistarinn í formúlu eitt kappakstrinum, Bretinn Jenson Button, er genginn til liðs við McLarenliðið, en hann ók áður fyrir Brawnliðið. Það verður því breskt tvíeyki sem keppir fyrir McLaren á næsta ári, því landi hans, Lewis Hamilton, er einnig á mála hjá liðinu. Finninn Kimi Raikkönen, fyrrverandi heimsmeistari, ætlar að snúa sér að rallakstri næsta árið eftir að McLarenliðið fórnaði honum fyrir Button.
17.11.2009 09:23
Glock ekur fyrir Manor liðið
Nýtt lið í Formúlu eitt kappakstrinum á næsta akstursári, Manor liðið hefur tryggt sér krafta ökumannsins Timo Glock. Þessi 27 ára Þjóðverji ók fyrir lið Toyota síðustu tvö ár, en var án liðs eftir að Toyota ákvað að senda ekki lið til keppni á næsta ári. Glock mun verða aðalökumaður hins nýja Manor liðs og samdi við liðið til tveggja ára, með möguleika á eins árs framlengingu.
16.11.2009 15:18
Brawn verður Mercedes
Mercedes Benz hefur keypt meirihluta, eða 75,1 prósent, í Brawn keppnisliðinu í Formúlu eitt kappakstrinum. Mun liðið síðan keppa undir merkjum Mercedes, en það hefur ekki gerst síðan árið 1955, en það ár varð Juan Manuel Fanigo heimsmeistari ökumanna. Líklegt er talið að báðir ökumenn Mercedes liðsins verði þýskir, þeir Nico Rosberg og Nick Heidfeld. Á síðasta tímabili voru ökumenn Brawn liðsins aftur á móti Jenson Button og Rubens Barrichello. Button hefur hins vegar samið við McLaren um að aka með liðinu á næsta ári og Barrichello mun aka fyrir Williams liðið.
04.11.2009 14:51
Samdráttur bitnar á akstursíþróttum
Japanski bílaframleiðandinn Toyota tilkynnti í dag brotthvarf sitt úr Formúlu 1. Toyota er 3. framleiðandinn sem hættir þátttöku í Formúlunni á einu ári en fjölmörg önnur fyrirtæki hafa dregið úr umsvifum sínum á vettvangi akstursíþrótta einnig. Það er vegna síversnandi ástands á mörkuðum og er liður í sparnaði framleiðendanna. Forráðamenn Bridgestone dekkjaframleiðandans hafa tilkynnt að þegar samningur fyrirtækisins renna út í lok næsta árs kveddu þeir Formúluna. Mitsubishi dró sig út úr Dakar rallinu í ársbyrjun og Subaru og Suzuki gerðu slíkt hið sama í rallakstri sem og Kawasaki í mótorhjólakappakstri. Þá hafa Honda og BMW einnig sagt skilið við Formúlu 1 á árinu.
01.11.2009 20:15
Vettel sigraði í Abu Dhabi frumraun
Þjóðverjinn Sebastian Vettel sigraði í lokamóti Formúlu 1 í Abu Dhabi í dag. Mótið um helgina varð það fyrsta þar sem ekið er jafnt að degi sem kvöldi og því óku kapparnir jafnt í dagsbirtu og flóðljósum. Fyrir kappaksturinn í dag var orðið ljóst að Jenson Button hjá Brawn væri heimsmeistari ökumanna og að Brawn væri heimsmeistari liða. Vettel varð rúmlega 17 sekúndum á undan liðsfélaga sínum Mark Webber og því vann Red Bull tvöfaldan sigur í dag. Vettel varð annar í stigakeppni ökumanna í ár og vann fjórða kappakstur sinn á árinu. Nýkrýndur heimsmeistari, Jenson Button, varð þriðji. Button hlaut 95 stig í keppni ökuþóra og Vettel 84.
29.10.2009 15:55
Rosberg hættir hjá Williams
Þýski ökuþórinn Nico Rosberg fer frá Formúlu eitt liði Williams í lok ársins. Rosberg tilkynnti þetta í dag og sagðist myndu aka í síðasta sinn fyrir Williams í Abu Dhabi um helgina. Búist er við því að hann muni aka fyrir heimsmeistaralið Brawn næsta ár.
23.10.2009 12:24
Jean Todt forseti FIA
Jean Todt, fyrrverandi keppnisstjóri Ferrari, var í morgun kjörinn forseti Alþjóða akstursíþróttasambandsins sem sér meðal annars um Formúlu eitt-keppnina. Todt sigraði Finnann Ari Vatanen, fyrrverandi heimsmeistara í rallakstri, í kjörinu og tekur við af Bretanum Max Mosley sem hefur verið mjög umdeildur síðustu misserin.
18.10.2009 19:55
Button heimsmeistari
Jenson Button, ökumaður Brawn keppnis-liðsins í Formúlu eitt, varð heimsmeistari ökumanna nú fyrir stundu eftir að hafa lent í fimmta sæti í Brasilíu-kappakstrinum. Þetta var fyrsti heimsmeistaratitill Buttons í Formúlu eitt.
08.10.2009 15:29
Massa flaggar í Brasilíu
Brasilíski ökuþórinn Felipe Massa mun veifa köflótta flagginu í brasilíska Formúlu eitt kappakstrinum um aðra helgi. Massa, sem sigraði í kappakstrinum í fyrra, er að ná sér eftir alvarlegt slys í ungverska kappakstrinum í sumar og hann mun feta í fótspor frægs fólks eins og Pele og Giselle Bundchen. Mótshaldarar sögðu í dag að Luca di Montezemolo, forseti Ferrari, hefði þegið boð þeirra um að Massa væri í þessu hlutverki í ár. Landi hans og vinur, Rubens Barrichello, berst við Bretann Jenson Button um heimsmeistaratitilinn.
07.10.2009 14:50
F-1: Kubica til Renault
Pólverjinn Robert Kubica mun taka sæti Spánverjans Fernandos Alonsos hjá Renaultliðinu í Formúlu eitt kappakstrinum. Eins og tilkynnt var á dögunum fer Alonso til Ferrariliðsins. Kubica hefrur ekið fyrir BMW-Sauberliðið síðan árið 2006 og á einn sigur að baki, í Kanada í fyrra. Nokkur lið, þeirra á meðal Toyota og Williams, höfðu sýnt Kubica áhuga eftir að BMW liðið tilkynnti að það myndi hætta í Formúlu eitt kappakstrinum.04.10.2009 12:05
Formúla 1: Vettel sigraði
Þjóðverjinn Sebastien Vettel sem ekur fyrir Rauða bolann, eða Red Bull liðið, sigraði í morgun í japanska Formúlu eitt kappakstrinum sem fram fór á Suzuka brautinni. Ítalinn Jarno Trulli varð annar á Toyota og Finninn Kimi Räikkönen á Ferrari varð þriðji. Þetta var þriðji sigur Vettels í ár og hann er nú þriðji í stigakeppninni með 69 stig. Bretinn Jenson Button sem varð áttundi í dag er efstur með 85 stig og félagi hans hjá Brawnliðinu, Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello, er annar með 71 stig, en hann varð sjöndi í dag. Vettel er fyrsti Þjóðverjinn utan Schumacherfjölskyldunnar sem vinnur þrjár keppnir á sama ári.
24.09.2009 21:12
Renault missir bakhjarla
Einn aðalbakhjarla Reunaultliðsins í Formúlu eitt kappakstrinum, hollenska fjármálafyrirtækið ING, tilkynnti í dag að það hefði slitið samstarfinu vegna svindlhneykslisins sem skekið hefur Formúluna. Spænska tryggingafélagið Mutua Madrilena fylgdi síðan í kjölfarið. Renaultliðið var í vikunni dæmt í skilorðsbundið keppnisbann fyrir að svindla í Singapúrkappakstrinum í fyrra.
21.09.2009 14:46
Renault á skilorði
Renaultliðið var í dag dæmt í tveggja ára skilorðsbundið keppnisbann í Formúlu eitt kappakstrinum og liðsstjórinn fyrrverandi, Ítalinn Flavio Briatore, var dæmdur í ævilangt bann eftir að liðið viðurkenndi að hafa svindlað í Singaporekappakstrinum í fyrra. Þá var öðrum ökumanni liðsins, Brasilíumanninum Nelson Piquet, skipað að keyra á vegg til að stöðva keppnina og hjálpa félaga hans, Spánverjanum Fernando Alonso, að vinna keppnina. Keppnisstjóri liðsins, Pat Symonds, var dæmdur í fimm ára bann. Alonso var hreinsaður af öllum grun. Dómurinn þýðir að Renaultliðið fær að halda áfram að keppa nema það brjóti frekar af sér á næstu tveimur árum. 18.09.2009 14:28
FIA vissi af svindli Renault í ár
Alþjóða aksturssambandið (FIA) hefur vitað af svindli Nelsons Piquet og Renault liðsins allt frá því í nóvember í fyrra. Þetta fullyrðir faðir Piquet, Nelson Piquet eldri.
16.09.2009 13:37
Renault-menn sekir
Renault-liðið tilkynnti í dag að það hefði ákveðið að berjast ekki gegn ásökunum fyrrverandi ökumanns þess, Nelson Piquet, en hann sagði í síðustu viku að honum hefði verið skipað að klessukeyra bíl sinn í Singapore-kappakstrinum í fyrra til að aðstoða félaga sinn, Fernando Alonso. Þar með hefur liðið í reynd viðurkennt sekt sína. Aðalstjórnandi liðsins, Ítalinn Flavio Briatore, og keppnisstjórinn, Pat Symonds, hafa báðir tekið pokann sinn og yfirgefið liðið. Líklegt má telja að Renault-liðinu verði vísað úr Formúlu eitt kappakstrinum.

