
Góð ráð og æfingar sem tilvalið er að gera heima. Íris Rut Garðarsdóttir sjúkraþjálfari hefur umsjón með leikfiminni.
Styrktaræfingar fyrir handleggi. Sitjandi æfingar. Gott að hafa létt lóð eða vatnsflösku við hendina.
Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Fjármálaráðuneytið efndi til ráðstefnunnar í dag í tilefni af nýrri skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum, sem kom út fyrir helgi. Skýrslunni er ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um gjaldmiðlamál í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við ESB. Fjórir erlendir sérfræðingar unnu skýrsluna undir forystu Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðings OECD. Við ræðum við hana í þætti kvöldsins.
Hópur þjóðþekkts fólks sem vinnur að kvikmynd um ævi þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar óskaði eftir leyfi til þess að grafa bein hans upp í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í DNA-greiningu. Þingvallanefnd tók málið fyrir í síðasta mánuði en afstaða og svar nefndarinnar er sú að hún geti ekki veitt slíka heimild nema að fyrir liggi dómsúrskurður. Meðal þeirra sem eru á bak við umsóknina er Páll Valsson sagnfræðingur sem er gestur Kastljóss.
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Kópavogs: Kolbeinn Marteinsson, Katrín Júlíusdóttir, Skúli Þór Jónasson.
Lið Akureyrar: Davíð Orri Guðmundsson, María Pálsdóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson.
Sigmar Guðmundsson fær til sín góða gesti úr öllum áttum og ræðir við þá undir fjögur augu. Gestirnir eiga það sameiginlegt að hafa áhugaverða sögu að segja. Dagskrárgerð: Salóme Þorkelsdóttir.
Sigmar Guðmundsson ræðir við Kolbrúnu Benediktsdóttur saksóknara, um skuggahliðar þeirra mála sem hún rannsakar og hvernig hún nýtir sára reynslu til að hjálpa öðrum.
Fróðlegur og skemmtilegur þáttur um fólk sem á rætur um allan heim, en hefur af ólíkum ástæðum sest að á Íslandi. Næstum því einn af hverjum tíu íbúum Íslands er af erlendum uppruna. Sumir komu hingað af því að þá langaði til þess, aðrir áttu fáa aðra kosti. Einhverjir ætluðu bara rétt aðeins að staldra við, en ílentust óvart á lítilli eyju í norðri. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir og Ragnheiður Thorsteinsson.
Í Rótum er fjallað um fólk sem á rætur um allan heim en hefur sest að á Íslandi. Við spyrjum fjöldann allan af fólki um ástæður þess að það settist hér að og förum yfir hraða þróun íslensks samfélags í átt að fjölmenningarsamfélagi. Við tölum við Pólverja um hvernig það er að vera pólskur á Íslandi. Við heimsækjum filippseyska ömmu með fullt hús af börnum og tölum við unga afganska flóttakonu um hvernig það var að flytja frá Íran til Íslands.
Hver skrifar sögu okkar? Það fer eftir ýmsu, svo sem þjóðerni, kyni eða uppruna, og sama atburði má lýsa á marga mismunandi vegu. Fornleifauppgröftur, nýjar rannsóknir eða annar tíðarandi getur líka valdið því að sagnfræðin verði endurskoðuð. Emma Molin og Özz Nûjen hjálpa okkur að sjá fleiri en eitt sjónarhorn á sögunni.

Karla er 8 ára kjúklingur, sem hefur það að markmiði að halda öllum ánægðum, svo lengi sem það kemur ekki niður á lífi hennar. Hún elskar skólann sinn og alla vini sína. Hún leggur hart að sér til að þóknast öllum, en stundum ganga hlutirnir ekki alveg eins og áætlað var. Í þessum þáttum eru félagsleg samskipti og tilfinningar þeim tengd könnuð út frá heimi krakkanna. Hvað er rétt og hvað er rangt? Getur maður átt fleiri en einn besta vin?

Önnur þáttaröð um Lalla, sem færir ykkur allan heiminn þegar hann grípur litina sína. Hann er svo flinkur að teikna hann Lalli!

Marri leirkall og vinir hans eru afar uppátækjasamir og í þessum þáttum lenda þeir í háskalegum ævintýrum þar sem þeir búa. Heimkynni þeirra eru fremur óvenjuleg, en þeir búa á borðplötu.
Flóra er níu ára og finnur gat í limgerðinu úti í garði. Hún skríður í gegn og er skyndilega stödd í skóginum endalausa – galdraheimi þar sem allt getur gerst. Þar ráfa um skrítnar og stórkostlegar verur. Þær lenda í ýmiss konar vandræðum og enginn getur hjálpað þeim – nema kannski Flóra sjálf?
Þegar afi ykkar er búin að þjálfa ykkur sem skrímslaveiðimenn, þá er ekkert annað í stöðunni en að veiða öll skrímslin! Það er þó eitt vandamál, krakkarnir elska skrímslin og vilja helst bara bjarga þeim. Það geta þau gert á meðan afi blundar, eða hvað?

Helstu fréttir settar fram á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Umsjón og handrit: Ari Páll Karlsson og Embla Bachmann. Ritstjórn: Ari Páll Karlsson.
1. Verðlaunahafar Eddunnar og Grímunnar 2. Ungu fréttakonurnar Birta, Heiðrún og Harpa kíktu á Unga, sviðlistahátíð fyrir krakka.

Finnlandssænskir heimildarþættir um kvenlega fegurð og öldrun. Þáttastjórnandinn Eva Kela leit áhyggjur kvenna af því að eldast hornauga en nú þegar hún er sjálf komin yfir fertugt og farin að finna aldursmerki á eigin skinni áttar hún sig á því hversu sterk áhrif fegurðarstaðlar hafa á hana. Hún ræðir við konur komnar yfir fertugt sem veita innsýn inn í breytt útlit sitt og líðan.

Vikinglottó-útdráttur vikunnar.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.

Íþróttafréttir.

Veðurfréttir.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.

Leikmenn, þjálfarar, sérfræðingar og sófasérfræðingar hita upp fyrir heimsmeistaramótið í fótbolta í sumar með laufléttri en háalvarlegri spurningakeppni. Umsjón: Edda Sif Pálsdóttir og Helga Margrét Höskuldsdóttir. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Liðin eru:
Þjálfarar
Hermann Hreiðarsson
Arnar Gunnlaugsson
Ólafur Helgi Kristjánsson
Dr. Football
Gunnar Birgisson
Hjörvar Hafliðason
Eiður Smári Guðjohnsen

Þættir sem fjalla um þjóðirnar sem taka þátt á HM karla í fótbolta. Við kynnumst leikmönnum, þjálfurum og þeim þjóðum sem keppa um heimsmeistaratitilinn á þessum stærsta viðburði vinsælustu íþróttagreinar veraldar.
Norskir leiknir þættir frá 2025. Þættirnir gerast í upphafi þessarar aldar og fjalla um Selinu, 17 ára stelpu, sem hefur þurft að þola mikið einelti í skóla. Eftir að hún stofnar bloggsíðu þar sem hún deilir fegrunarráðum og mærir lýtaaðgerðir verður hún skyndilega stærsta og umdeildasta stjarna Noregs. Aðalhlutverk: Elli Rhiannon Müller Osborne, Pås Sverre Hagen og Jon Øigarden. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.

Dönsk heimildarmynd frá 2022. Þegar Silas er sex ára kemur í ljós að hann erfði augnsjúkdóm frá móður sinni og missir hægt og rólega sjónina. Móðir hans fer með hann í ferðalag til Íslands til að gefa honum tækifæri til að sjá fegurðina í náttúrunni á meðan hann hefur enn sjón. Á sama tíma reynir hún að undirbúa hann fyrir lífið án sjónar með því að kenna honum að treysta á önnur skynfæri. Leikstjóri: Julie Bezerra Madsen.
Breskir spennuþættir um rannsóknarlögreglukonuna Rachitu Ray sem fær stöðuhækkun og er færð yfir í morðrannsóknir. Ekki finnst öllum að stöðuhækkunin hafi verið tímabær en Rachita er staðráðin í að sanna að hún sé tilbúin að taka að sér flókin mál. Aðalhlutverk: Parminder Nagra, Steve Oram og Gemma Whelan. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Önnur þáttaröð þessara bresku spennuþátta. Lana Washington er sprengjusérfræðingur hjá lögreglunni í Lundúnum. Hún hættir lífi sínu nánast daglega og þarf sífellt að vera viðbúin nýjum og breytilegum ógnum. Aðalhlutverk: Vicky McClure, Eric Shango og Nabil Elouahabi. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 16 ára.

Helstu fréttir dagsins af innlendum og erlendum vettvangi. Alla daga, árið um kring.