Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir sagði af sér þingmennsku á Alþingi í morgun. Hún var gestur Kastljóss.
Við fjöllum líka um fataframleiðslu í nútímanum og veltum fyrir okkur hvers vegna við getum ennþá gengið í fötum sem framleidd voru fyrir mörgum áratugum síðan. Mun einhver erfa fötin sem við kaupum okkur í dag?
Spurningakeppni sveitarfélaga frá 2018. Þátttakendur að þessu sinni eru lið frá þeim sveitarfélögum sem komust í úrslit árin á undan eða hafa oftast komist nálægt því. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Sólmundur Hólm. Spurningahöfundur og dómari er Jón Svanur Jóhannsson. Stjórn útsendingar: Helgi Jóhannesson.
Lið Garðabæjar: Þorbjörg Þorvaldsdóttir, Jóel Ísak Jóelsson, Vilhjálmur Bjarnason.
Lið Ísafjarðarbæjar: Greipur Gíslason, Tinna Ólafsdóttir, Gylfi Ólafsson.
Sænskir heimildarþættir frá 2021. Stór hluti daglegs lífs okkar er stafrænn - en hversu örugg er staða okkar í stafrænum heimi? Í þáttunum taka þrautreyndir tölvuhakkarar sig til og brjótast inn í tölvur hjá einstaklingum og fyrirtækjum, bara til að sýna okkur hinum hversu sáraeinfalt það er að komast yfir gögn - og líf - fólks með því að hakka tilveru þeirra.
Nýir heimildarþættir um Bubba Morthens þar sem farið er yfir 15 vinsælustu lögin hans að mati þjóðarinnar. Rætt er við Bubba auk fjölda samferðamanna hans þar sem lögin og hans helstu tímabil á löngum ferli eru rifjuð upp. Sýnt er áður óséð myndefni og upptökur. Umsjón: Gunnlaugur Jónsson. Leikstjórn: Þór Freysson.

Lifandi og fjölbreyttur þáttur um fréttir, menningu og dægurmál. Helstu fréttir dagsins eru krufðar og ljósi varpað á litríkt mannlíf um land allt. Umsjón: Sigríður Halldórsdóttir, Bergsteinn Sigurðsson, Guðrún Sóley Gestsdóttir og Urður Örlygsdóttir.
Siggi Gunnars stýrir lifandi þætti um dægurmenningu með áherslu á tónlist, sjónvarp og kvikmyndir. Helstu straumar og stefnur, innlit til áhugaverðs fólks og skemmtilegir gestir í myndveri. Umsjón: Sigurður Þorri Gunnarsson. Stjórn upptöku: Ragnar Eyþórsson.
Í þættinum að þessu sinni ætlum að kynna okkur fyrirbærið lagahöfundabúðir. Hvað er það?
Svo eru það hlaðvörpin sem hafa kannski aldrei verið vinsælli. Hvað gerir gott hlaðvarp og hvað eigum við að hlusta á? Sérfræðingar þáttarins, þeir Árni Helgason og Oddur Ævar Gunnarsson, ætla að svara því á eftir.
Í lok þáttar er það svo frumflutningur á nýju lagi með Ásgeiri Trausta, lagið heitir Skýjaborg, en hann er að skipta aftur yfir í íslenskuna.
Ný bresk dramaþáttaröð byggð á samnefndri skáldsögu eftir Barböru Taylor Bradford. Emma Hart starfar sem húshjálp í Yorkshire í byrjun 20. aldar. Með mikilli seiglu vinnur hún sig upp úr fátækt og byggir upp alþjóðlegt viðskiptastórveldi. Aðalhlutverk: Jessica Reynolds, Emmett J. Scanlan og Lydia Leonard. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.
Breskir spennuþættir um örvæntingafulla móður sem lifir áhættusömu lífi sem skartgripaþjófur á sama tíma og hún reynir að ná dóttur sinni aftur frá félagsþjónustunni og byggja örugga framtíð fyrir þær báðar. Aðalhlutverk: Sophie Turner, Frank Dillane og Mia Millichamp-Long. Þættirnir eru ekki við hæfi barna yngri en 12 ára.