Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar er helgaður 50 ára afmælisplötu Félags íslenskra hljómlistarmanna sem kom út síðla árs 1982.
Í síðustu viku var fyrri plata afmælisalbúmsins undir nálinni, A og B hlið, og má segja að tónlistin hafi gefið nasasjón af íslenskri tónlistarhefð frá upphafi tuttugustu aldar fram á sjötta áratuginn. Á seinni plötunni, sem verður nú leikin, C- og D hliðar, er að finna tónlist frá upphafi íslenskrar rokksögu, eða frá sjöunda og áttunda áratug aldarinnar. Upptaka en frá tvennum tónleikum á Broadway í febrúar 1982.
C-hliðin hefst með fyrstu íslensku rokksveitinni, Hljómum, sem flytja lagið Fyrsti kossinn. Þá syngja Lúdó og Stefán Því ekki að taka lífið létt, Pops Wild Thing, Tempó True Love Ways, Náttúra Nymphenburger (East Of Eden), Ævintýri Summertime og Roof Tops Söknuð (Try A Little Tenderness) og loks flytur Trúbrot lagið To Be Grateful.
D-hliðin hefst með því að Mánar flytja lagið July Morning. Pónik og Einar flytja svo Beginnings, Þrumuvagninn lagið Í tilefni kvennaárs, Friðryk lagið Í kirkju og í lokin hljómar hluti af syrpu Brimklóar Rock 'n' Roll öll mín bestu ár, en syrpan komst ekki öll að í þættinum vegna plássleysis.
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Einstaklingar héðan og þaðan leika tónlist að eigin vali í þáttaröð frá vetrinum 2013-2014
Þátturinn var fyrst á dagskrá 7. júní 2014.
Umsjón: Sigurbjörg Þrastardóttir
Í þætti kvöldsins verða rámar raddir í fyrirrúmi, leikin verða lög með Tom Waits, Rod Stewart, Megasi og fleirum – yfirskriftin er Barkakýli úr tré – og nokkrir flytjendur eru ítalskir. Tvær hrjúfar kvenraddir koma einnig við sögu.
1. No One knows I'm gone – Tom Waits (Alice)*
2. Lime Tree Arbour – Nick Cave (The boatman’s call)
3. Vivere – Vasco Rossi (Gli spari sopra)
4. Handbags and Gladracks – Rod Stewart
5. Gli uomini non cambiano – Mia Martini
6. Margherita – Riccardo Cocciante
7. Beyond here lies nothing – Bob Dylan (Together through life)
8. Flower's Grave – Tom Waits (Alice)
9. Poison Oak – Bright Eyes (I’m wide awake, it’s morning)
10. Tu me acostumbraste – Chavela Vargas (Babel Soundtrack)
11. Frændi þegar fiðlan þegir – Megas (Á morgun)

frá Veðurstofu Íslands.
Anna Marsý leitar uppi ástarsögur fyrir hlustendur Rásar 1 og hlaðvarpsins: þessar rómantísku, þessar sorglegu, þessar hversdagslegu og allt þar á milli.
Umsjón: Anna Marsbil Clausen
Í stjörnuspárbókinni stóð að Erna Geirdal ætti eftir að eignast tvo eiginmenn.
En það stóð ekkert um að hún myndi giftast þeim þrisvar.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Tónlist héðan og þaðan
Útvarpsfréttir.
Fjármálaráðherra segir óviðunandi að stórar opinberar framkvæmdir tefjist vegna kærumála. Hann boðar frumvarp í haust sem tekur á þessu.
Slökkviliðsmenn á Spáni hafa náð tökum á gróðureldunum sem hafa orðið minnst 12 að bana í Andalúsíu. Sjö manns er enn saknað og um 1500 þurftu að flýja heimili sín.
Bandaríkjaforseti er illur eftir að út spurðist að Íranir hefðu skipulagt að ráða hann af dögum. Hann segist reiðubúinn að útrýma Íran.
Lögreglan í Bretlandi rannsakar dauða fyrrverandi ráðherra og sjónvarpsstjörnu sem morð en segir ekkert benda til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur.
Formaður Landssambands veiðifélaga er bjartsýnn á veiðisumarið framundan þrátt fyrir lélegt upphaf. Vel hefur veiðst í Borgarfirði undanfarna daga.
Og svo virðist sem kattarminta sé jafnáhrifarík í baráttunni við moskítuflugur eins og flugnafæluefnið DEET
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Við höldum áfram með Sumar-Heimskviðurnar og rifjum upp mál frá liðnum vetri og þátturinn í dag er helgaður einu máli. Það er saga Palomu, sem við getum nú líklega ekki kallað annað en harmsögu. Paloma Shemirani, frá suðausturhluta Bretlands, var aðeins 23 ára þegar hún lést úr eitilfrumukrabbameini í fyrrasumar. Þegar hún greindist sjö mánuðum áður, voru taldar 80% líkur á að hún næði fullum bata með lyfjameðferð.
Móðir hennar, Kate Shemirani, er þekkt í Bretlandi. Hún missti leyfi sitt sem hjúkrunarfræðingur í kórónuveirufaraldrinum fyrir að dreifa skaðlegum upplýsingum um Covid-19. Kate Shemirani tókst að sannfæra dóttur sína um að hafna lyfjameðferð og gangast frekar undir óvísindalegar meðferðir skottulækna. Hún tapaði því baráttu sinni við meinið. Dánardómstjóri í Bretlandi segir umsjá Kate Shemirani yfir dóttur sinni ófullnægjandi og skammarlega, en ekki glæpsamlega. Bróðir Palomu er ósáttur við niðurstöðuna.
Í viðtali við Odd Þórðarson segir bróðirinn, sem heitir Gabriel, að hann kenni móður þeirra um andlát systur sinnar. Mamma þeirra hafi á grundvelli samsæriskenninga og vantrúar á heilbrigðiskerfið, sannfært hana um að hafna lyfjameðferð.
Íslensk jaðartónlist úr ýmsum áttum frá ýmsum hliðum. Umsjón: Árni Matthíasson
Steinunn Eldflaug Harðardóttir lagði fyrir sig myndlist framan af, en tónlistin togaði þó í hana og varð á endanum hennar listgrein, enda fannst henni meira frelsi í tónlistinni. Að því sögðu þá segist hún gjarnan hugsa um tónlist eins og myndlist og reynir að skipuleggja tónleika til að skapa sem mesta upplifun fyrir áheyrendur líkt og þeir væru að koma á listsýningu.
Lagalisti
Húðlitað klám - Vivaldi konsert í A-moll 1:00
Rokk og róleg lög - Wolksvagon
Rokk og róleg lög - Póníhestarnir
Glamúr í geimnum - Ráðabrugg Villikattanna
Glamúr í geimnum - Draumar töframannsins
Nótt á hafsbotni - Gamli fjandi
Þrífðu þetta hland - Svínin hyllt
Our Atlantis - The Sphinx
Óútgefið - Margfætlusjónaukinn
Óútgefið - Ljómþokur
Stjórnendur Lestarinnar, þau Lóa og Kristján, kryfja popplög með Friðriki Margrétar Guðmundssyni, tónskáldi, tónlistarmanni og poppmeinafræðingi.
Bankareikningur með tuttugu og sjö og ég er bara tuttugu og sjö syngur Herra Hnetusmjör. Friðrik Margrétar Guðmundsson, poppsérfræðingur og tónskáld, kryfur lagið Elli Egils til mergjar.
Umsjón:
Lóa Björk Björnsdóttir, Kristján Guðjónsson og Friðrik Margrétar-Guðmundsson
Bandaríska stórstjarnan Whitney Houston skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Tónlistarferill hennar spannar rúman aldarfjórðung en hún lést árið 2012, 48 ára að aldri.
Í fjórum þáttum fjallar Berglind María Tómasdóttir um feril og stormasamt lífshlaup Whitney Houston, áhrif hennar og arfleifð.
Bandaríska stórstjarnan Whitney Elisabeth Houston frá Newark í New Jersey skaust fram á sjónarsviðið um miðjan níunda áratug síðustu aldar og varð á skömmum tíma einn af vinsælustu skemmtikröftum veraldar. Sagt er tónlistarlegu uppeldi hennar. Foreldrarnir og nánustu ættingjar fengust við tónlist, en útgefandinn Clive Davis gerði hana að stjörnu.
Rætt er við Önnu Marsibil Clausen í þættinum.
Umsjón: Berglind María Tómasdóttir.
Umsjón: Illugi Jökulsson
Umsjón: Illugi Jökulsson
Valgerður Kr. Brynjólfsdóttir starfaði lengi hjá stofnun Árna Magnússonar og kvaddi stofnunina með mikilli bók þar sem hún rannsakaði merkilega forna rímu, er fjallaði um Mábil sterku. Sjaldgæft var að rímur fjölluðu um konur en Mábil sterka var heldur ekki nein venjuleg kona. Valgerður fjallar um rímuna, Mábil og rímur yfirleitt í spjalli við Illuga Jökulsson og Guðrún S. Gísladóttir les brot úr rímunni.
Tónlist frá ýmsum tímum úr ólíkum héruðum Djasslandsins. Íslenskt og erlent í bland.
Lagalisti:
Johnson, Robert - Cross road blues (take 1).
Jón Páll Bjarnason, Útlendingahersveitin, Árni Scheving, Pétur Östlund, Þórarinn Ólafsson, Árni Egilsson - Song of the gardeners.
Tómas R. Einarsson, Magnús Eiríksson, Gunnar Þórðarson Tónlistarmaður, Gunnlaugur Briem Tónl., Gunnar Þórðarson, Eyþór Gunnarsson - Einu sinni á ágústkvöldi.
ADHD Hljómsveit - Síðasta bragð Geira.
Greer, Sonny, Hodges, Johnny, Carney, Harry, Taylor, Billy, Brown, Lawrence, Williams, Cootie, Ellington, Duke, Hodges, Johnny and his Orchestra - Jeep's blues.
Heath, Albert, May, Earl, Coltrane, John, Chambers, Paul, Byrd, Donald, Taylor, Art, Garland, Red, Hayes, Louis - Like someone in love.
Trichotomy - Forward motion.
Erskine, Peter, Jack Magnet Science - Ruptures.
Schmid, Stefan Karl, Hilmar Jensson, Duppler, Lars - Frá liðnu vori.
Guðmundur St. Steingrímsson Tónlistarm., Guðmundur Ingólfsson Tónlistarm., Árni Scheving, Viðar Alfreðsson - Three.
Armstrong, Louis, Longshaw, Fred, Smith, Bessie - St. Louis blues.

Fréttir
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Rús - þættir um þjóð og menningu á krossgötum
Ár er liðið frá innrás Rússa í Úkraínu. Hvernig tölum við um Rússland og hinn slavneska heim í kjölfar þessara voveiflegu atburða? Eigum við að slaufa rússneskri menningu eða þvert á móti faðma hana að okkur fastar en nokkru sinni fyrr í von um að ná áttum í heimi sem stendur á krossgötum? Kaldastríðsbarn og lúsugur Rússlandsfari kafar ofan í þessar hábölvuðu spurningar með hjálp sérfróðra.
Í þessum þætti segir umsjónarmaður frá ást sinni á Rússlandi og rússneskri menningu.
Umsjón: Gunnar Þorri Pétursson.
Lesari í þættinum ásamst umsjónarmanni er Ása Helga Hjörleifsdóttir.
Aðstoð við dagskrárgerð: Guðni Tómasson.

frá Veðurstofu Íslands
Sveiflutónlist og söngdansar að hætti hússins.
Jónatan Garðarsson valdi.
Tríó Jason Rebello leikur lögin When Words Fail, Dolphin Street, It's At Times Like These og Wait And See. Kvartett Dave Brubeck leikur lögin Someday My Prince Will Come, The Time Of Our Machine, I Got Rhythm, Deep Purple, All Of Me og The Salmon Strikes Again. Ray Brown og félagar leika lögin Get Happy, My Funny Valentine, Papa's Got A Brand New Bag, Gershwin syrpu, Birks Works og Mysterioso.
Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Málstefna getur átt við um tvennt: líklega tengja flestir orðið málstefna við útgefna framkvæmdaáætlun en í víðari merkingu er átt við flókið samspil viðhorfa, málnotkunar og ákvarðana um málið. Erindi Guðrúnar Kvaran um málstefnu, í Málstofunni, er rifjað upp.
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Umsjón: Melkorka Ólafsdóttir
Jóna G Kolbrúnardóttir segir frá sínu uppáhalds tónverki.
Maria Callas syngur Damor sur ali róse, eftir Verdi, úr óperunni Il trovatore. Herbert von Karajan stjórnar hljómsveit óperunnar í Scala. Upptakan er frá árinu 1956.
Í framhaldinu flytja tenórsöngvararnir Jonas Kaufmann og Giovanni Gregnanin, ásamt sópransöngkonunni Eriku Grimaldi, valdan kafla úr sömu óperu; Ah! si, ben mio... Di quella pira. Óperuhljómsveitin í Parma leikur, undir stjórn Pier Giorgio Morandi.

Í Sagnaslóð er leitað fanga úr fortíðinni. Frásagnir úr sögu þjóðarinnar.
Umsjón: Birgir Sveinbjörnsson og Jón Ormar Ormsson.


frá Veðurstofu Íslands

Leikin er gamaldags tónlist frá öldinni sem leið: dægurlög, harmóníkutónlist, djass og danslög. Gömlu góðu hljómplöturnar eru í heiðri hafðar, bæði litlar og stórar, að ógleymdum segulböndum úr safni útvarpsins en í segulbandasafninu leynast margar ófáanlegar hljóðritanir með íslenskum tónlistarmönnum. Umsjónarmaður þáttarins er Lana Kolbrún Eddudóttir.
Leikin eru sjómannalög.
Umsjón: Lana Kolbrún Eddudóttir.
Farið yfir helstu fréttir vikunnar í spjalli við fólkið í fréttunum og fréttaskýrendur.
Gestir Vikulokanna eru Snærós Sindradóttir framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar og Halldór Benjamín Þorbergsson einn stofnanda Áfram-Ísland. Þau ræddu komandi þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við ESB.
Umsjón: Höskuldur Kári Schram
Tæknimaður: Þráinn Steinsson

Útvarpsfréttir.
Í Þú veist betur eru engin umræðuefni of lítil eða of stór. Í meira en 100 þáttum höfum við skoðað allt frá skammtafræði, eldgosum og kjarnorku yfir í ketti, bjór, laxeldi, talmeinafræði, hunda, lungun og landnám Íslands. Og svona mætti lengi telja.
Þættir á mannamáli fyrir forvitna sem vilja skilja heiminn betur, hvort sem það snýst um vísindi, samfélag, líkamann eða söguna.
Umsjón: Atli Már Steinarsson.
Heimsstyrjöld sem þurfti ekki að skella á, en gerði það nú samt. Í þessum þætti fæ ég til mín Gunnar Þór Bjarnason sagnfræðing til að fara yfir Evrópu árið 1914: stórveldin, bandalagskerfið, og hvernig morðið á ríkiserfingja Austurríkis-Ungverjalands í Sarajevo varð að heimsstyrjöld á rúmum mánuði. Við förum í skotgrafirnar á vesturvígstöðvunum, austur til Rússlands og byltingarins sem breytti gangi stríðsins, og að þeim atburðum sem á endanum drógu Bandaríkjamenn inn í átökin.
Umsjón: Atli Már Steinarsson
Viðmælandi: Gunnar Þór Bjarnason
Felix Bergsson fer fram og til baka í tíma og rúmi með hlustendum Rásar 2. Hann skoðar gjarnan það sem gerðist á deginum á árum áður, fylgist með því sem efst er á baugi í menningarlífinu og fær svo góða gesti í Fimmuna. Þeir segja af fimm atriðum sem hafa haft djúp áhrif á líf þeirra.
Umsjónarmenn Fram og til baka kynntu sér hátíðir á landinu og ræddu við Áskel Heiðar Ásgeirsson, framkvæmdastjóra Landsmóts hestamanna sem fer fram þessa helgina á Hólum í Hjaltadal. Þá fengu þau til sín söngdívurnar Selmu og Hönsu sem ræddu samstarfið í gegnum árin og sumardjassinn á Jómfrúnni.
Heimsmeistaramótið í fótbolta er á allra vörum þessa dagana og til þess að ræða fótboltann kíkti meðal annars Kári Tulinius, fótboltanörd, til þeirra í stúdíó sem hefur verið að skrifa skemmtilega fótboltapistla fyrir Guardian. Að lokum kíkti blaðamaðurinn Erla María Markúsdóttir við sem hefur fylgst grannt með heimsmeistaramótinu og rýndi meðal annars í töskusafn Erlings Haaland.
Útvarpsfréttir.
Fjármálaráðherra segir óviðunandi að stórar opinberar framkvæmdir tefjist vegna kærumála. Hann boðar frumvarp í haust sem tekur á þessu.
Slökkviliðsmenn á Spáni hafa náð tökum á gróðureldunum sem hafa orðið minnst 12 að bana í Andalúsíu. Sjö manns er enn saknað og um 1500 þurftu að flýja heimili sín.
Bandaríkjaforseti er illur eftir að út spurðist að Íranir hefðu skipulagt að ráða hann af dögum. Hann segist reiðubúinn að útrýma Íran.
Lögreglan í Bretlandi rannsakar dauða fyrrverandi ráðherra og sjónvarpsstjörnu sem morð en segir ekkert benda til þess að glæpurinn hafi verið pólitískur.
Formaður Landssambands veiðifélaga er bjartsýnn á veiðisumarið framundan þrátt fyrir lélegt upphaf. Vel hefur veiðst í Borgarfirði undanfarna daga.
Og svo virðist sem kattarminta sé jafnáhrifarík í baráttunni við moskítuflugur eins og flugnafæluefnið DEET
Helgarútgáfan slær taktinn með þjóðinni á laugardögum. Júlía Margrét setur puttann á púlsinn, skrunar yfir allt það skemmtilega sem er á sveimi í menningu og mannlífi, gestir mæta með margs konar meðmæli og taktviss topptónlist fær að hljóma.
Það voru fjölmiðlakonan Lilja Katrín Gunnarsdóttir og tónlistarmaðurinn Teitur Magnússon sem hrærðu í meðmælasúpu dagsins með Júlíu Margréti. Siggi Gunnars var á línunni frá Hrísey og lagaþemað var ávextir í lagatextum!
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.

Fréttir

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Það eiga allir einhverjar góðar og jafnvel trylltar minningar af dansgólfinu þar sem diskókúlan snýst. Við spilum dansmelli áratuganna og kyndum upp í minningum hlustenda. Við rifjum upp skemmtistaði, ákveðin ár eða gullaldartímabil þar sem dansgólfin voru troðfull af gleði og látum.
Þátturinn geymir dagskrárliði eins og Diskótvennuna, Dansárið er, Skemmtistað fortíðar, Veislustjórann og íslenska lagið. Að lokum er kokteill kvöldsins hristur fyrir hlustendur, nokkurra laga syrpa með lögum úr ýmsum áttum.
Diskókúlan snýst í Teitileiti 1 enn á ný á laugardagskvöldum, í þættinum PartyZone: Undir Diskókúlunni.
Dansslagarar fortíðar og nostalgía fyrir dansþyrsta hlustendur Rásar 2.
Í þætti kvöldsins heyrum við diskótvennuna, förum aftur til dansársins 1989 og sömuleiðis heimsækjum við skemmtistaðinn Thomsen sumarið 2001.
Lokahnykkurinn er síðan m.a. vel hristur kokteill kvöldsins, íslenska lagið og nýja lagið.

Heiða Eiríks og Ingi Þór stjórna Næturvaktinni til skiptis. Þau spjalla við landann og spilar tónlist úr öllum áttum á laugardagskvöldum. Ljúfir tónar, brjálað rokk og óskalög úr öllum landshornum.
