Björn Þór Sigbjörnsson og Þórunn Elísabet Bogadóttir fylgja hlustendum inn í daginn, skýra baksvið frétta og ræða við áhugavert fólk um Ísland og umheiminn.
Fjögur ár verða í næstu viku frá því að Rússar hófu allsherjarinnrás sína í Úkraínu. Viðræður milli ríkjanna tveggja um frið héldu áfram í vikunni án árangurs. Hver er staða Rússlands eftir þessi fjögur ár, ekki bara af stríði heldur líka refsiaðgerðum? Hvernig stendur efnahagurinn? Við ræddum við Jón Ólafsson prófessor.
Við fjölluðum líka um Carl Sæmundsen. Hann var stórmerkilegur maður, frá Blönduósi en bjó áratugum saman í Kaupmannahöfn. Hann gaf Alþingi húseignina við Östervoldgade í Höfn - þar bjuggu Jón Sigurðsson og Ingibjörg Einarsdóttir á þriðju hæðinni. 60 ár eru síðan Carl færði íslensku þjóðinni þessa rausnarlegu gjöf.
Í umfjöllun um sígilda tónlist fórum við upp á sjálft háa c-ið tenóranna. Það er vitað hvar og hvenær það heyrðist fyrst og úr hvers barka. Magnús Lyngdal sagði okkur þessa sögu í dag og auðvitað heyrðum við tóndæmi.
Tónlist:
Laufey - Haunted.

07:30

08:30
Í þættinum eru atburðir og málefni líðandi stundar skoðaðir í ljósi sögunnar. Umsjón: Vera Illugadóttir.
Í þættinum er fjallað um bandaríska rithöfundinn og náttúruverndarsinnann Rachel Carson, sem vakti athygli bandarísks almennings á skaðsemi skordýraeitursins DDT með bók sinni Raddir vorsins þagna 1962.

Veðurstofa Íslands.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Unnur Birna Jónsdóttir Backman leikkona. Hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýrri íslenskri kvikmynd, Röskun, sem var frumsýnd í vikunni. Hún er svo gott sem alin upp í leikhúsinu, en móðir hennar var Edda Heiðrún Backman leikkona. Hún lék sitt fyrsta hlutverk í stórri erlendri sjónvarpsþáttaröð, Örnen, en gekk svo í gegnum langt tímabil þar sem hún vildi alls ekki verða leikkona. Faðir Unnar er myndilstarmaðurinn Jón Axel Björnsson sem var með vinnustofuna sína á jarðhæðinni heima hjá þeim, það var listafólk allt í kringum hana. Við fórum víða í spjallinu með Unni Birnu, ræddum leiklistina, nýju kvikmyndina og ýmislegt fleira í viðtalinu.
Svo kom Sigurlaug Margrét auðvitað í matarspjallið í dag. Það var ekki laust við að það hafi verið talsverð vorþrá í því spjalli og heitt súkkulaði kom talsvert við sögu.
Tónlist í þættinum í dag
Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi)
Tell Me That it Isn’t True / Bob Dylan (Bob Dylan)
Trouble / Cat Stevens (Cat Stevens)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Á annan tug bætast við í hverri viku - í hóp þeirra sem bíða eftir hjúkrunarrými á Landspítalanum. Í síðustu viku tókst að koma þrjátíu þaðan, en rúmlega hundrað bíða ennþá.
Tveir starfsmenn heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu greindust með berklasmit í skimun. Starfsmennirnir eru ekki smitandi og eru skjólstæðingar ekki útsettir fyrir smiti.
Húsleit stendur enn yfir í aðsetri Andrews Mountbatten-Windsor - í Windsor. Hann var látinn laus í gær eftir 11 tíma yfirheyrslur en er enn til rannsóknar.
Grindvíkingar eru ánægðir með að geta valið hvar þeir kjósa í sveitarstjórnarkosningum í vor. Ekki á að fækka kjörnum fulltrúum í bænum.
Spenna vex á milli Bandaríkjamanna og Írana sem hóta hver öðrum árásum. Bandaríkjaforseti gefur Íransstjórn 10-15 daga til að ná samkomulagi um kjarnorkuvopn. Olíuverð hækkaði skarpt vegna óvissunnar.
Forseti sveitarstjórnar Múlaþings hvetur umhverfis- og samgöngunefnd til að láta endurreikna arðsemi Fjarðarheiðarganga þar sem hún hafi verið grunnforsenda þess að slá göngin af.
Erfitt verður fyrir rússnesk stjórnvöld að takast á við afleiðingarnar heima fyrir ef til stríðsloka kemur í Úkraínu, segir sérfræðingur í málefnum Rússlands. Bandaríkin haldi líflínu í Rússum á alþjóðavettvangi, sem sé þeim þó dýrkeypt.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnar í hádeginu - gleðiefni fyrir skíðaáhugafólk í vetrarfríi.
Daglegur þáttur um stór og lítil fréttamál í umsjón Inga Freys Vilhjámssonar og Ingvars Þórs Björnssonar.
Runólfur Ágústsson, fyrrverandi rektor Háskólans á Bifröst, og Ólína Þorvarðardóttir, starfandi rektor, hafa ólíkar hugmyndir um framtíð skólans.
Runólfur telur að skólinn eigi sér ekki lengur tilverurétt sem sjálfstæð menntastofnun á meðan Ólína telur skólann á góðri siglingu sem halda muni áfram.
Runólfur ræðir einnig um ábyrgð sína á stöðu skólans í dag en í rektorstíð hans fór skólinn í mikla skuldsetningu uppbyggingu á fasteignum í Borgarfirði. Hann segir að á þeim tíma hafi sú uppbygging verið jakvæð og rökrétt en ákvarðanir eftirmanna hans hafi kippt fótunum undan rekstrargrundvelli skólans í Borgarfirði.
Umsjón: Ingi Freyr Vilhjálmsson
Í janúar voru augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótaði að yfirtaka landið, NATÓ virkaði vanmáttugt og óstöðugt, þúsundir mótmæltu á götum úti og síðan, skyndilega, virtist allt vera búið. En hvað svo? Um viku eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti batt enda á hina svokölluðu baráttu um Grænland fóru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og Hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir grænlensku þjóðina?
Er ásókn Trump í Grænland það afdrifaríkasta sem komið hefur fyrir sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga?
Við reynum að skilja samhengi sjálfstæðisbaráttunnar, afnýlenduvæðingu og samband Hans Egede og Hafmóðurinnar.
Viðmælendur í þættinum eru
Guðmundur (Gujo) Þorsteinsson
Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen
Aka Hansen
Lög sem spiluð voru í þættinum
Sooq - Tarrak og Peand-eL
Uummatip tusaataa - Uillut
QILAAT - Varna
ANAANA - Varna
Imigassaq - Sumé
Qullissat=Qullissat - Sumé
Brot úr þættinum Um Grænland frá 1976
Lestur úr bókinni A Kayak Full of Ghosts: Eskimo Tales eftir Lawrence Millman frá 1987

Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Við heyrum aftur sögurnar sem sagðar voru í þáttaröðinni Sögum af landi, sem var á dagskrá Rásar 1 frá árinu 2015-2023. Þar var flakkað um landið, rætt við fólk sem hafði sögur að segja, kynntir voru áhugaverðir staðir og fréttamál líðandi stundar skoðuð - oft með nýjum augum. Efni í þættina unnu frétta- og dagskrárgerðarfólk RÚV um allt land.
Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
Þáttur frá 15. janúar 2017: Í þætti dagsins ætlum við að skyggnast inn í netheima. Líf okkar flestra markast í síauknu mæli af stafrænni starfsemi. Verslun og viðskipi, upplýsingastreymi, fréttir og skemmtan eru allt hlutir sem hafa færst meira og minna yfir á netheima. Í Sögum af landi í dag höfum við lagt snörur okkar fyrir fólk sem veit sitt hvað um hina ýmsu kima netsins. Innslög unnu: Dagur Gunnarsson, Rögnvaldur Már Helgason og Þórgunnur Oddsdóttir.
Umsjón með endurliti: Gígja Hólmgeirsdóttir.
Vínil plata úr safninu dregin fram og spiluð í heild.
Vínill vikunnar að þessu sinni er platan Keyboard Fantasies með kanadíska söngva- og tónskáldinu Beverly Glenn-Copeland.
Keyboard Fantasies kom fyrst út á kassettu árið 1986, gefin út af Glenn-Copeland sjálfum og seldist í fáeinum eintökum.
Platan er öll rafræn utan raddar Copeland, algjörlega unnin á Yamaha DX-7 hljómborð og Roland TR-707 trommuheila, stafræn hljóðfæri sem voru um það leyti sem Keyboard Fantasies kom út, að ryðja sér til rúms sem helstu tæki teknó og housetónlistarfólks.
Glenn-Copeland var langt á undan sinni samtíð og tónlist hans féll í gleymsku. Árið 2015 komst japanskur plötusafnari yfir Keyboard Fantasies og hafði uppi á Copeland og bað hann að senda sér kassettur til að selja. Copeland samþykkti og kasseturnar ruku út. Fljótlega fór honum að berast beiðnir um endurútgáfu og platan var gefin út á vínil 2017 og hefur verið endurpressuð nokkrum sinnum síðar, auk annarrar tónlistar Glenn-Copelands.
Lagalisti:
A1: Ever New
A2: Winter Astral
A3: Let Us Dance
B1: Slow Dance
B2: Old Melody
B3: Sunset Village
Umsjón: Pétur Eggertsson
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Jónína Erna Arnardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi, Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, leikkona og söngkona voru gestir Endastöðvarinnar í Borgarnesi. Þau ræddu einleik Unnar Aspar Stefánsdóttur, Sölku -Ástina og dauðann sem er sýnd á Sögulofti Landnámsseturs í Borgarnesi, en líka óperur, barnamenningu og mikilvægi þess að hafa skapandi fyrirmyndir í nærumhverfi sínu.
Fréttir
Fréttir
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í dag að verndartollar sem Donald Trump forseti lagði á innfluttar vörur frá fjölmörgum löndum ættu ekki rétt á sér. Trump segist hafa varaáætlun.
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir líkur á að allir framlínustarfsmenn verði skimaðir fyrir berklum eftir að tveir starfsmenn greindust í gær. Þeir eru einkennalausir og smita ekki.
94 prósent félagsráðgjafa hafa orðið fyrir einhverskonar ofbeldi í starfi, þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var meðal stéttarinnar.
Reykjavíkurborg hefur náð samningi við verktaka og byrjar aftur að dreifa heitum máltíðum í mars eftir að loka þurfti framleiðslueldhúsi borgarinnar á Vitatorgi fyrr í mánuðinum vegna listeríu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Kjördæmavika hefst í næstu viku og þá má segja að þingmenn taki leikhlé, hitti kjósendur, fari yfir hvað hafi verið gert og hvað eigi eftir að gera. Magnús Geir Eyjólfsson, þingfréttaritari RÚV, býst við miklum spretti fram í maí þegar gert verður hlé vegna sveitastjórnarkosninga.
Nærri þriggja milljarða króna líforkuver sem til stóð að reisa við Eyjafjörð, hefur verið sett á ís og vefsíðu þess verið lokað. Þegar hafa farið tugir milljóna í undirbúning verkefnisins.
Evrópska loftslagsráðið leggur þunga áherslu á að tryggja verði fjármögnun nauðsynlegra rannsókna og aðgerða, og að horft verði til fyrirsjáanlegra loftslagsáhrifa við alla stefnumótun og lagasetningu. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni segir ekki tekið á fjármögnuninni í íslensku aðlögunaráætluninni, en að þótt bæta megi íslenskt regluverk verulega hvað þetta varðar, þá sé víða horft til loftslagsbreytinga í því, einkum á sviði skipulagsmála.

frá Veðurstofu Íslands
Dægurflugur og söngvar frá ýmsum tímum.
Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Lögð er áhersla á ljóð þekktra skálda og lög sem hafa verið samin við þau, þó svo að fyrsta lagið sé þeirrar gerðar að það er óvíst hvort kom á undan, kvæðið eða lagið. Það er kvæðið Blástjarnan eftir Bjarna Thorarensen, en höfundur lagsins er ókunnur. Djasskvartettinn Norr 4 leikur það lag. Hjalti Jónsson og Lára Sóley Jóhannsdóttir flytja Ég bið að heilsa, ljóð Jónasar Hallgrímssonar og lag Inga T. Lárussonar. Pálmi Gunnarsson syngur lag við ljóðið Draumur aldamótabarnsins og Stefán Hilmarsson syngur Vetrarljóð, bæði lögin eftir Magnús Þór Sigmundsson og kvæðin eftir Margréti Jónsdóttur. Anton Kristinn Guðmundsson syngur tvö kvæði langafa síns Guðmundar Böðvarssonar, en lögin eru annarsvegar eftir Auði Haraldsdóttur og hinsvegar Sigurð Rúnar Jónsson. Þetta eru Völuvísa og Fylgd. Tvíeykið Þau flytja þrjú lög Garðars Borgþórssonar við ljóð skáldkvenna, við ljóðin Vont og verst og Til kvæðagyðjunnar eftir Ólöfu frá Hlöðum og Heyrði ég í hamrinum við ljóð Huldu. Umsjón: Jónatan Garðarsson.
Í janúar voru augu heimsbyggðarinnar á Grænlandi. Bandaríkjaforseti hótaði að yfirtaka landið, NATÓ virkaði vanmáttugt og óstöðugt, þúsundir mótmæltu á götum úti og síðan, skyndilega, virtist allt vera búið. En hvað svo? Um viku eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti batt enda á hina svokölluðu baráttu um Grænland fóru Pétur Magnússon og Lóa Björk Björnsdóttir til Nuuk til að ræða við fólkið sem situr eftir með spurningar eins og Hvað gerðist? Hvers vegna? Og hvað tekur nú við fyrir grænlensku þjóðina?
Er ásókn Trump í Grænland það afdrifaríkasta sem komið hefur fyrir sjálfstæðisbaráttu Grænlendinga?
Við reynum að skilja samhengi sjálfstæðisbaráttunnar, afnýlenduvæðingu og samband Hans Egede og Hafmóðurinnar.
Viðmælendur í þættinum eru
Guðmundur (Gujo) Þorsteinsson
Inga Dóra Guðmundsdóttir Markussen
Aka Hansen
Lög sem spiluð voru í þættinum
Sooq - Tarrak og Peand-eL
Uummatip tusaataa - Uillut
QILAAT - Varna
ANAANA - Varna
Imigassaq - Sumé
Qullissat=Qullissat - Sumé
Brot úr þættinum Um Grænland frá 1976
Lestur úr bókinni A Kayak Full of Ghosts: Eskimo Tales eftir Lawrence Millman frá 1987

Skáldsaga Halldórs Laxness um hinn 18 ára gamla Stein Elliða kom út árið 1927 þegar Halldór var sjálfur 25 ára gamall.
Þessi saga um leit ungs manns að eigin lífsskoðunum þótti marka tímamót í íslenskri bókmenntasögu.
Valdimar Örn Flygenring las söguna fyrir útvarpið árið 1991.
Í 5., 6. og 34. lestri les Bára Lyngdal Magnúsdóttir ásamt Valdimar Erni og í 7. og 8. lestri les Guðrún S. Gísladóttir ásamt Valdimar.


frá Veðurstofu Íslands

Svanhildur Óskarsdóttir les sálmana í hljóðritun frá árinu 1998.
Árið 1944 var tekinn upp sá siður hjá Ríkisútvarpinu að lesa alla Passíusálma Hallgríms Péturssonar á föstunni.
Um litróf mannlífsins. Okkur er ekkert mannlegt óviðkomandi. Alla virka daga milli kl. 11-12 á Rás 1.
netfang: [email protected]
Umsjón: Guðrún Gunnarsdóttir og Gunnar Hansson.
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Unnur Birna Jónsdóttir Backman leikkona. Hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýrri íslenskri kvikmynd, Röskun, sem var frumsýnd í vikunni. Hún er svo gott sem alin upp í leikhúsinu, en móðir hennar var Edda Heiðrún Backman leikkona. Hún lék sitt fyrsta hlutverk í stórri erlendri sjónvarpsþáttaröð, Örnen, en gekk svo í gegnum langt tímabil þar sem hún vildi alls ekki verða leikkona. Faðir Unnar er myndilstarmaðurinn Jón Axel Björnsson sem var með vinnustofuna sína á jarðhæðinni heima hjá þeim, það var listafólk allt í kringum hana. Við fórum víða í spjallinu með Unni Birnu, ræddum leiklistina, nýju kvikmyndina og ýmislegt fleira í viðtalinu.
Svo kom Sigurlaug Margrét auðvitað í matarspjallið í dag. Það var ekki laust við að það hafi verið talsverð vorþrá í því spjalli og heitt súkkulaði kom talsvert við sögu.
Tónlist í þættinum í dag
Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi)
Tell Me That it Isn’t True / Bob Dylan (Bob Dylan)
Trouble / Cat Stevens (Cat Stevens)
UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Rætt um menningarvikuna sem er að líða og það sem er efst á baugi og framundan um helgina.
Jónína Erna Arnardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans á Akranesi, Sigursteinn Sigurðsson, menningarfulltrúi hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og Sigríður Ásta Olgeirsdóttir, leikkona og söngkona voru gestir Endastöðvarinnar í Borgarnesi. Þau ræddu einleik Unnar Aspar Stefánsdóttur, Sölku -Ástina og dauðann sem er sýnd á Sögulofti Landnámsseturs í Borgarnesi, en líka óperur, barnamenningu og mikilvægi þess að hafa skapandi fyrirmyndir í nærumhverfi sínu.

Útvarpsfréttir.
Morgunútvarpið vekur hlustendur með glóðvolgum fréttum og snarpri umfjöllun um samfélagsmál. Umsjónarmenn eru Guðrún Dís Emilsdóttir og Atli Fannar Bjarkason.
Hundruð þúsunda barna á Gaza hafa verið svipt réttindum sínum til náms. Árásir Ísraelsher hafa haldið áfram þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi og nú eru námsgögn loksins farin að berast inn á svæðið. UNICEF fer af stað með verkefnið aftur til náms á Gaza á fimmtudag og miðar það að því að koma 336 þúsund börnum aftur í skóla á þessu ári og veita þeim sálræna aðstoð. Sigyn Blöndal, kynningarstjóri UNICEF, fór á Vesturbakkann fyrir áramót og sá þar með eigin augum hverjar áskoranirnar eru. Húnkom til okkar í Morgunútvarpið og sagði okkur frá þessu metnaðarfulla verkefni.
Vísir greindi frá því í vikunni að íslenska tíkin Þekla gaut ellefu hvolpum, sjö tíkum og fjórum rökkum. Eigandinn Guðný Halla Gunnlaugsdóttir segist aldrei hafa vitað af íslenskum fjárhundi sem hefur átt svona marga lifandi hvolpa í goti. Við heyrðum í henni og spurðum hvernig gengur.
Mánuður er liðinn frá því að við tókum eftirminnilegt viðtal við Jakob Birgisson um níkotínfíknina, sem hann var að reyna að vinna bug á. Þá var vika síðan hann lagði lummurnar á hilluna og nú var komið að því að kanna hvernig gengur. Er Jakob laus úr viðjum fíknarinnar eða eru dollurnar byrjaðar að banka upp á? Jakob var á línunni.
Konudagurinn er framundan og þá klórar fólk sér í kollinum yfir hvað á að gera fyrir konur þessa lands. Er gamli, góði blómvöndurinn nóg eða þarf að ganga lengra? Marta María í Smartlandinu er með puttann rækilega á púlsinum og hún kom til okkar og lagði línurnar. Ættu kannski allir dagar að vera konudagar?
Eftir svona viku dugir ekkert minna en óperusöngvarar til að fara yfir fréttir vikunnar. Þau Kristín Sveinsdóttir, sem syngur hlutverk Carmenar í samnefndri sýningu í Tjarnarbíói og Eggert Reginn Kjartansson sem syngur hlutverki Don José komu til okkar og hófu upp raust sína.

07:30

08:30
Létt spjall og lögin við vinnuna.
Í Morgunverkunum var Lagalisti fólksins aðal málið. Þemað var þess vegna: hvaða lag minnir þig á konu. Hlustendur brugðust ekki frekar en fyrri daginn. Einnig heiðraði Jack Nicholson sjálfann Bob Dylan með 35 ára gamalli ræðu.
Lagalisti þáttarins:
GUS GUS – David
LL COOL J – Doin it
GRACE JONES – My Jamaican Guy
KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI – Bæ Bæ
BOBBY WOMACK – Across 110th Street
HJÁLMAR – Og Ég Vil Fá Mér Kærustu
ALOE BLACC – I Need a Dollar
PRIMAL SCREAM – Movin' on up
STONE ROSES – Love spreads (edit)
UNA TORFADÓTTIR – Fyrrverandi
PAUL McCARTNEY & WINGS – Maybe I'm Amazed
Á MÓTI SÓL – (Djöfull er ég) Flottur
VÖK – Autopilot
HARRY STYLES – Late night talking
RED HOT CHILI PEPPERS – Under The Bridge
BOB DYLAN – Positively 4th Street
AEROSMITH – Janie's got a gun
ELLES BAILEY – Growing Roots
JÚNÍUS MEYVANT – Beat Silent Need
KISS – Rock'n Roll All Nite
NÝDÖNSK – Flauel
THE CLASH – Train In Vain
PRINS THOMAS ISOEBEL – Linger
KENYA GRACE – Strangers
SUEDE – Trash
EMILÍANA TORRINI & FJALLKONAN – Bömpaðu baby bömpaðu
NICK CAVE – Into My Arms
QUEEN – You're My Best Friend
BEYONCÉ – Plastic Off the Sofa
JOHN LENNON – Woman
SÚ ELLEN – Kona
DEPECHE MODE – Just can't get enough
CYNDI LAUPER – Girls Just Want To Have Fun
VORMENN ÍSLANDS – Átján rauðar rósir
BONG – Do You Remember
MAZZY STAR – Fade Into You
KENT – If You Were Here
HADDAWAY – What Is Love?
PALMI GUNNARSSON – Íslenska Konan
DIRE STRAITS – Sultans Of Swing
SKÁLMÖLD - Kvaðning

Yfirlit hádegisfrétta kl. 12 virka daga.
Útvarpsfréttir.
Á annan tug bætast við í hverri viku - í hóp þeirra sem bíða eftir hjúkrunarrými á Landspítalanum. Í síðustu viku tókst að koma þrjátíu þaðan, en rúmlega hundrað bíða ennþá.
Tveir starfsmenn heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu greindust með berklasmit í skimun. Starfsmennirnir eru ekki smitandi og eru skjólstæðingar ekki útsettir fyrir smiti.
Húsleit stendur enn yfir í aðsetri Andrews Mountbatten-Windsor - í Windsor. Hann var látinn laus í gær eftir 11 tíma yfirheyrslur en er enn til rannsóknar.
Grindvíkingar eru ánægðir með að geta valið hvar þeir kjósa í sveitarstjórnarkosningum í vor. Ekki á að fækka kjörnum fulltrúum í bænum.
Spenna vex á milli Bandaríkjamanna og Írana sem hóta hver öðrum árásum. Bandaríkjaforseti gefur Íransstjórn 10-15 daga til að ná samkomulagi um kjarnorkuvopn. Olíuverð hækkaði skarpt vegna óvissunnar.
Forseti sveitarstjórnar Múlaþings hvetur umhverfis- og samgöngunefnd til að láta endurreikna arðsemi Fjarðarheiðarganga þar sem hún hafi verið grunnforsenda þess að slá göngin af.
Erfitt verður fyrir rússnesk stjórnvöld að takast á við afleiðingarnar heima fyrir ef til stríðsloka kemur í Úkraínu, segir sérfræðingur í málefnum Rússlands. Bandaríkin haldi líflínu í Rússum á alþjóðavettvangi, sem sé þeim þó dýrkeypt.
Skíðasvæðið í Bláfjöllum opnar í hádeginu - gleðiefni fyrir skíðaáhugafólk í vetrarfríi.

Poppland er vinur í raun og land án landamæra. Poppland er einn elsti og dáðasti tónlistarþáttur landsins. Umsjón: Lovísa Rut Kristjánsdóttir.
Þau Hrafnhildur Halldórsdóttir og Rúnar Róbertsson halda landanum vel upplýstum um menn og málefni á leið úr vinnu. Þau fylgjast með fréttum og dægurmálum og spila nóg af góðri tónlist.
Rannsókn heldur áfram í dag á fyrrum heimili Andrews Mountbatten-Windsor, sem var sleppt síðdegis í gær eftir handtöku vegna gruns um að hafa deilt viðkvæmum upplýsingum með Jeffrey Epstein sem viðskiptaerindreki Bretlands. Bresku götublöðin slá öll upp á forsíðu handtöku Andrew og var hann ekki upplitsdjarfur á mynd sem náðist af honum á leið frá lögreglustöðinni þar sem hann var í haldi. En hvernig er orðið á götunni, hún Sigrún Sævarsdóttir Griffiths býr í Lundúnum og við heyrðum í henni.
Leikskólar í Ölfusi verða gjaldfrjálsir frá og með næstu mánaðamótum. Á fundi bæjarráðs í vikunni var samþykkt að öllum börnum verði boðin 36 tíma vistun á viku án endurgjalds, óháð tekjum foreldra. Með þessu fellur tekjutenging niður og sama fyrirkomulag gildir um öll börn. Við slóum á þráðinn til Elliða Vignissonar bæjarstjóra.
Anna Lea Friðriksdóttir var kjörin formaður Félags íslenskra bókaútgefenda, fyrst kvenna í 137 ára sögu félagsins. Hún segir mikilvægt að halda umræðunni um bókalestur á jákvæðum nótum og að þannig megi koma bókum aftur í tísku. Anna Lea kom til okkar, og sagði okkur af sínum verkefnum sem fram undan eru stöðu bókarinnar.
Björn Thoroddsen gítarleikari hefur verið einn af atkvæðamestu tónlistarmönnum Íslands s.l ár og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar á ferli sínum. Bjössi Thor, en það er hann yfirleitt kallaður, hefur verið að hasla sér völl í hinum stóra gítarheimi á síðustu árum og leikið með mörgum af þekktustu gítarleikum heims. Hann var föstudagsgestur Síðdegisútvarpsins í dag.
Tónlistarmaðurinn Kurt Cobain forsprakki Nirvana hefði fagnað 59 ára afmæli sínu í dag en hann fæddist 20. febrúar 1967 og lést 5. apríl 1994. Það ár bárust þessi válegu tíðindi tónlistarheiminum að Cobain hafi fundist á heimili sínu í Seattle og dánarorsökin sjálfsvíg, að hann hafi skotið sig með byssu. En í allan þennan tíma hafi verið háværar raddir uppi um að ekki hafi verið um sjálfsvíg að ræða, heldur morð og nýlegar rannsóknir sérfræðinga varpa ljósi á að ekki hafi allt verið með felldu á þeim stað sem Cobain fannst á sínum tíma. Franz Gunnarsson tónlistarmaður þekkir talsvert til sögu Cobain og hann kom til okkar og ræddi þessar nýju kenningar.
Vikan með Gísla Marteini verður á sínum stað í kvöld í sjónvarpinu, og þegar kemur að gestum Gísla þá er alltaf sama fólkið ... eða hvað. Gísli kom til okkar.
Fréttir
Fréttir
Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í dag að verndartollar sem Donald Trump forseti lagði á innfluttar vörur frá fjölmörgum löndum ættu ekki rétt á sér. Trump segist hafa varaáætlun.
Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir líkur á að allir framlínustarfsmenn verði skimaðir fyrir berklum eftir að tveir starfsmenn greindust í gær. Þeir eru einkennalausir og smita ekki.
94 prósent félagsráðgjafa hafa orðið fyrir einhverskonar ofbeldi í starfi, þetta sýna niðurstöður nýrrar könnunar sem gerð var meðal stéttarinnar.
Reykjavíkurborg hefur náð samningi við verktaka og byrjar aftur að dreifa heitum máltíðum í mars eftir að loka þurfti framleiðslueldhúsi borgarinnar á Vitatorgi fyrr í mánuðinum vegna listeríu.
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Kjördæmavika hefst í næstu viku og þá má segja að þingmenn taki leikhlé, hitti kjósendur, fari yfir hvað hafi verið gert og hvað eigi eftir að gera. Magnús Geir Eyjólfsson, þingfréttaritari RÚV, býst við miklum spretti fram í maí þegar gert verður hlé vegna sveitastjórnarkosninga.
Nærri þriggja milljarða króna líforkuver sem til stóð að reisa við Eyjafjörð, hefur verið sett á ís og vefsíðu þess verið lokað. Þegar hafa farið tugir milljóna í undirbúning verkefnisins.
Evrópska loftslagsráðið leggur þunga áherslu á að tryggja verði fjármögnun nauðsynlegra rannsókna og aðgerða, og að horft verði til fyrirsjáanlegra loftslagsáhrifa við alla stefnumótun og lagasetningu. Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags á Veðurstofunni segir ekki tekið á fjármögnuninni í íslensku aðlögunaráætluninni, en að þótt bæta megi íslenskt regluverk verulega hvað þetta varðar, þá sé víða horft til loftslagsbreytinga í því, einkum á sviði skipulagsmála.

Fréttastofa RÚV.

Kletturinn sér um að koma þér í gírinn á föstudagskvöldum. Rokk er rauði þráðurinn í gegnum þáttinn í eins teygjanlegum skilningi og mögulegt er. Rokk, indie rokk, indie popp, dans-pönk, nýbylgja, alt-rokk, síðpönk og country verður á boðstólum í hrærigraut af stemmingu og straumum.
Umsjón: Karl Sölvi Sigurðsson.


Samkvæmis og gleðiþáttur á föstudagskvöldum þar sem Doddi litli leikur hressandi samkvæmispopp síðustu fimm áratuga og dansar með hlustendum inn í helgina.