Umsjón: Una Margrét Jónsdóttir.
Margar af goðsögnum Forn-Grikkja snúast um Trójustríðið sem menn töldu að hefði verið háð á 13. eða 12. öld fyrir Krist. Frægar fornbókmenntir tengjast þessu stríði svo sem "Ilionskviða" og "Ódysseifskviða" eftir skáldið Hómer og þríleikurinn „Óresteia“ eftir harmleikjahöfundinn Aiskýlos, en goðsagnirnar hafa einnig haft áhrif á nútímabókmenntir og listaverk. Undanfarið hafa sögur sem tengjast Trójustríðinu verið sérlega mikið í sviðsljósinu. Kvikmyndin „Ódysseifskviða“, sem Christopher Nolan leikstýrði, var frumsýnd á þessu ári og hér á landi hefur sýning Þjóðleikhússins á Óresteiu í leikgerð og leikstjórn Benedicts Andrews vakið mikla athygli. Í tilefni af þessu verða næstu þrír Tónsviðsþættir Unu Margrétar Jónsdóttur helgaðir tónlist sem tengist Trójustríðinu og sögum þeim tengdum. Í þessum þætti (15. október) verður fjallað um Trójustríðið, í þættinum eftir viku, 22. október, verður sjónum beint að Ódysseifskviðu og 29. október verður fjallað um Óresteiu. Af þeirri tónlist sem flutt verður í þættinum um Trójustríðið má nefna atriði úr gamanóperunni „Helenu fögru“ eftir Jacques Offenbach, söngdúettinn „Kveðju Hektors“ eftir Franz Schubert og atriði úr óperunni „Kassöndru“ eftir Bernard Foccrouille, en síðastnefnda óperan var frumflutt í Brüssel árið 2023. Umsjón með þættinum hefur Una Margrét Jónsdóttir, en lesarar eru Gunnar Hansson og Halla Harðardóttir.
- Endurflutt
Bryndís Björgvinsdóttir setur upp garðhanskana.
Í þáttunum er fræjum sáð og fróðleik um hvers kyns gróður mokað upp. Fjallað er um garða, skóga, umhirðu og græn svæði – og ekki síst gæðastundirnar í náttúrunni.
Ráfað er um Hellisgerði í fylgd góðra gesta. Rætt er um serbíugreni, beyki, hrossakastaníu, deigli og fleira. Rýnt er í ræktunarsögu þessa gamla garðs og hlutverks hans sem skemmtigarðs. Staldrað er við klifurhortensíu og gráösp. Óvænt saga af samskiptum manna og álfa við jaðar garðsins er opinberuð.
Viðmælendur: Jónatan Garðarsson, Anton Helgi Jónsson og Steinar Björgvinsson.
- Endurflutt

frá Veðurstofu Íslands.
Tónlistarþáttur í umsjón Kristofers Rodríguez Svönusonar, slagverksleikara og tónskálds. Kristofer ræðir við góða gesti um sögu og þróun ryþma í menningarlegu samhengi, frá fornum helgisiðum til dansgólfa samtímans. Aðalsögumaður þáttarins er tónlistin og fjallar fyrsta serían um uppruna og þróun cumbia-tónlistar.
Kristofer Rodríguez Svönuson ræðir við Carlos Guarneros, tónlistarmann, kokk og einn af stofnendum Kúmbiavík Collective, um sögu og þróun Cumbia tónlistar í Mexíkó.
Lagalisti
Carmen Rivero - Cumbia Que Te Vas De Ronda
Rigo Tovar - Macondo
Los Dinners - Sampuesana
El Super Show De Los Vaskez - Regresa Corazón
Fito Oliveras Y La Pura Sabrosura - Juana La Cubana
Sonido Dueñez, Grupo Jejeje - Cumbia Con Jazz
Mexican Institute Of Sound - Cumbia
Los Ángeles Azules, Natalia Lafourcade - Nunca Es Suficiente
Son Rompe Pera - Pájaro Cenzontle
La Dimensión - La Danza De La Dimensión
Útvarpsfréttir.
Átján hundruð voru handteknir og yfir fimmtán hundruð verslanir urðu fyrir skemmdum í og eftir mótmælin í Frakklandi í gær. Innanríkisráðherra Frakklands segir skemmdarverkin til rannsóknar.
Íslendingur sem tók þátt í mótmælunum varð vitni að því þegar brotist var inn í ráðhúsið í borginni Angers. Margir skemmdarvargar hafi verið meðal mótmælenda.
Maður sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi.
Nokkuð var um foktjón í óveðri í gær, og þakplötur og -rennur losnuðu. Gul viðvörun vegna hvassviðris verður í gildi um allt land í dag og fram á kvöld.
Framboð á bótoxmeðferðum eftir óhefðbundnum leiðum hefur aukist. Lyfjastofnun varar eindregið við slíkum meðferðum.
16 kínversk skip voru rekin frá ströndum Taívans í morgun. Stjórnvöld í Taívan segja skipin hafa tekið þátt í fjölþáttaárásum.
Stella í orlofi verður sett á svið í Borgarleikhúsinu á næsta ári. Stóra verkefnið er að stinga sögunni í samband við tíðarandann segir annar höfundur leiksýningarinnar.
og það stefnir í æsispennandi titilbaráttu í Bestu deild kvenna í fótbolta.
Í Krakkaheimskviðum fjöllum við um fréttir af því sem gerist ekki á Íslandi, en tengist því samt stundum. Karitas kafar í heimsmálin ásamt góðum gestum og fjallar á einfaldan, skýran og skemmtilegan hátt um allt milli himins og jarðar.
Umsjón: Karitas M. Bjarkadóttir
Í þessum þætti Krakkaheimskviða kynnumst við nýjasta Nóbelsverðlaunahafa Íslendinga, ljóðskáldinu Anne Carson. Hver er hún og hvers vegna býr hún á Íslandi? Við skoðum líka suður-afríska lögfræðinginn sem fékk friðarverðlaun Nóbels og hvað það er sem hún heldur að hafi landað henni þeim.
Karl Th. Birgisson rekur söguna á bak við Watergate-hneykslið sem leiddi til þess að Richard Nixon sagði af sér sem forseti Bandaríkjanna 1974.
(Áður á dagskrá 2004)
Karl Th. Birgisson rekur söguna á bak við Watergate-hneykslið sem leiddi til þess að Richard Nixon sagði af sér sem forseti Bandaríkjanna.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

Hljóðritun frá einleikstónleikum franska píanistans Betrands Chamayou sem fram fóru í Norðurljósum, Hörpu 11. september 2026.
Á efnisskrá:
- Lieder ohne Worte, Ljóð án orða eftir Felix Mendessohn. Úrval úr heftum I, III og VI.
- Song Without (Good) Words, Söngur án (góðra) orða eftir Charles Ives.
- Golden Slumbers, útsetning Toru Takemitsu á lagi Johns Lennons og Pauls McCartneys.
-Widmung, Tileinkun eftir Robert Schumann.
- Eine Kleine Mitternachtmuski eftir George Crumb.
- Scraps of a Colinda, Melody - Fanitly Recollected eftir György Kurtág.
- Wanderer-fantasía eftir Franz Schubert.
Umsjón: Pétur Eggertsson.

Þáttur um íslensku og önnur mál.
Umsjón: Anna Sigríður Þráinsdóttir og Guðrún Línberg Guðjónsdóttir
Um algengar athafnir eru oft til mörg orð sem kalla má samheiti en lýsa athöfnunum nánar vegna fjölbreyttra blæbrigða í merkingu. Sagnirnar ganga og tala lýsa einna algengustu athöfnum okkar og um hvora þeirra er til fjöldi orða sem sum eru samheiti en lengra er á milli merkingar annarra.

Fréttir.
Hvernig rataði Hafmeyja Nínu Sæmundsson í Tjörnina í Reykjavík? Og hvað varð til þess að hún var sprengd í loft upp? Var glæpurinn fagurfræðilegur eða pólitískur? Var þetta hatursglæpur eða hrein skemmdarfýsn? Og hvernig tengjast módernistar, þjóðernissinnar, Hollywood og heitar ástir ráðgátunni? Í þessari sex þátta seríu kafar Halla Harðardóttir í best geymda leyndarmál íslenskrar listasögu, skoðar söguna í nýju ljósi og miðlar spennandi tilgátum.
Í þessum þætti veltum við fyrir okkur menningargengi Nínu hér á landi. Nína var listamaður en hún var líka kona og hún var líka hinsegin. Skiptir það máli? Við skoðum Reykjavík sem var og heimsækjum ættingja Nínu sem hefur sterka skoðun á því sem gerðist.
Viðmælendur: Gróa Björk Hjörleifsdóttir, Ásta Kristín Benediktsdóttir, Margrét Elísabet Ólafsdóttir

frá Veðurstofu Íslands
Fréttaskýringaþáttur sem fjallar á ítarlegan og lifandi hátt um heimsmálin, um allt það sem ekki gerist á Íslandi.
Umsjón: Birta Björnsdóttir og Bjarni Pétur Jónsson.
Þetta verður síðasta tækifærið til þess að leiða landið aftur á braut lýðræðis, segir viðmælandi Heimskviða um komandi þingkosningar í Serbíu. Þetta hljómar dramatískt en hann er ekki einn á þeirri skoðun. Kosningunum er lýst sem þjóðaratkvæðagreiðslu milli mannsins sem nýverið sagði af sér sem forseti og vill núna verða forsætisráðherra og svo fjöldahreyfingar stúdenta sem hefur teflt fram sínum lista. Ólöf Ragnarsdóttir segir okkur frá tímamótakosningum í Serbíu.
Auðlindir heimsins taka á sig ýmsar myndir. Sum ríki hafa byggt auð sinn á olíu sem sótt er djúpt úr jörðu. Önnur reiða sig á gjöful fiskimið, frjósamt land eða ferðamenn sem koma í leit að sól og ævintýrum. Slíkar atvinnugreinar hafa oft vaxið og þróast í áratugi og byggja jafnvel á aldagömlum hefðum. En stundum þarf hvorki að leita að olíu né sækja verðmæti úr sjó. Stundum nægja tveir bókstafir og dálítil heppni. Angvilla er lítil eyja og breskt yfirráðasvæði í Karíbahafi, austur af Púertó Ríkó og rétt norðan við eyjuna Sankti Martin. Þar búa um sextán þúsund manns, svipaður fjöldi og í Mosfellsbæ. Þegar Angvilla fékk landslénið sitt á veraldarvefnum fékk það endinguna punktur ai. Lengi vel voru þetta einfaldlega tveir bókstafir sem vísuðu til nafns eyjunnar. Síðan varð gervigreind að einni stærstu tæknibyltingu samtímans og bókstafirnir ai fengu allt aðra merkingu. Hinrik Wöhler segir okkur frá landslénunum verðmætu.
Tónlistarþáttur í umsjón Kristofers Rodríguez Svönusonar, slagverksleikara og tónskálds. Kristofer ræðir við góða gesti um sögu og þróun ryþma í menningarlegu samhengi, frá fornum helgisiðum til dansgólfa samtímans. Aðalsögumaður þáttarins er tónlistin og fjallar fyrsta serían um uppruna og þróun cumbia-tónlistar.
Kristofer Rodríguez Svönuson ræðir við Carlos Guarneros, tónlistarmann, kokk og einn af stofnendum Kúmbiavík Collective, um sögu og þróun Cumbia tónlistar í Mexíkó.
Lagalisti
Carmen Rivero - Cumbia Que Te Vas De Ronda
Rigo Tovar - Macondo
Los Dinners - Sampuesana
El Super Show De Los Vaskez - Regresa Corazón
Fito Oliveras Y La Pura Sabrosura - Juana La Cubana
Sonido Dueñez, Grupo Jejeje - Cumbia Con Jazz
Mexican Institute Of Sound - Cumbia
Los Ángeles Azules, Natalia Lafourcade - Nunca Es Suficiente
Son Rompe Pera - Pájaro Cenzontle
La Dimensión - La Danza De La Dimensión
- Endurflutt
Veraldarvefur tónlistarinnar. Lagasyrpur héðan og þaðan úr víðri veröld.
Listafólk frá Rúmeníu - Joc de doi din caras.
Milosavljevic, Voja - Rtanjsko kolo.
Sirtos Ensemble - Pulaki xeno.
Uning-Uningan - Pege sakarimpang.
Lucía, Paco de - Llanto a Cádiz (Tientos).
Dibango, Manu, Cuarteto Patria - El manicero.
Bridgewater, Dee Dee - Children go 'round (Demssénw).
Di Matteo, Luis - Candotang.
Bulos, Afif Alvarez - Ar-Rozana (The Rozana).
Manet, Raghunath, Sivaraman, Umayalpuram - Varnam.
Doumbia, Nahawa - Mogoya.
Coulibaly, Soungalo - Manamani.
- Endurflutt

Útvarpsfréttir.

frá Veðurstofu Íslands
Sígild og samtímatónlist frá ýmsum tímum. Íslenskt og erlent í bland.
Tónlistin í þættinum:
Prélude úr La damoiselle élue, L. 62 eftir Claude Debussy. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur á píanó. Útgefið á plötunni Debussy Rameau árið 2020.
Adagio und Allegro op. 70 (1849) eftir Robert Schumann. Emil Friðfinnsson leikur á horn og Þórarinn Stefánsson leikur á píanó. Upptaka fór fram í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði 24. júní 2013. Stafærn yfirfærsla á hljóðritum og gerð frumeintaks: Bjarni Rúnar Bjarnason. Útgefið á plötunni Tónlist fyrir horn og píanó árið 2022.
Sónata nr. 8 í G-dúr op. 30 nr. 3 eftir Ludwig van Beethoven. Þættir verksins eru þrír:
I. Allegro assai
II. Tempo di minuetto
III. Allegro vivace
Isabelle Faust leikur á fiðlu og Alexander Melnikov leikur á píanó. Útgefið á plötunni Complete sonatas for piano and violin árið 2009.
Fyrsti þáttur, Adagio úr Sinfóníu nr. 49 í f-moll, Hob.I:49 „Passían“ eftir Franz Joseph Haydn. Hljómsveitin Ludwig Orchestra leikur, stjórnandi er Barbara Hannigan. Upptaka fór fram í júní og júlí 2019 í Muziekcentrum van de Omroep í Hollandi. Útgefið á plötunni La Passione árið 2020.
Lascia la spina cogli la rosa úr óratóríunni Il trionfo del tempo e del disinganno eftir Georg Friedrich Händel. Cecilia Bartoli mezzósópran syngur, Hljómsveitin Les Musiciens du Louvre leika með undir stjórn Marc Minkowski. Útgefið á plötunni Opera proibita árið 2005.
Vals í fís-moll, „Valse melancolique“ KKIb/7 eftir Frédéric Chopin. Stephen Hough leikur á píanó. Hljóðritað 17.-20. október 2010 í Concert Hall, Wyastone Estate, Monmouth, Englandi. Útgefið á plötunni The complete waltzes árið 2011.
- Endurflutt

Umsjónarmaður spjallar um hvaðeina milli himins og jarðar, oft af sögulegu tagi, les forvitnilega texta úr ýmsum áttum, bæði íslenska og erlenda, og reynir af öllum mætti að hafa ofan af fyrir hlustendum þá klukkustund sem þátturinn stendur. Umsjón: Illugi Jökulsson.
Eftir fjögurra ára hlé gluggar umsjónarmaður aftur í æskuminningar Svetlönu, einkadóttur Stalíns, einræðisherra Sovétríkjanna. Hér segir einkum frá því þegar Svetlanda missti móður sína aðeins 6 ára gömul en móðir hennar virðist ekki hafa þolað kuldann og hráslagann í hjónabandi hennar og Stalíns.

Útvarpsfréttir.
Hulda Geirsdóttir er fyrst á fætur á sunnudagsmorgnum á Rás 2. Hún heyrir í fólki víða um land, fær til sín góða gesti og leikur fjölbreytta tónlist að sínum hætti. Notaleg morgunstund með hlustendum.
Hrafnhildur Halldórsdóttir leysir Huldu Geirs af að þessu sinni.
Gestir hennar í þættinum voru þær Helga Guðrún Johnson og Hulda Gunnarsdóttir sem ræddu upphafsár Stöðvar 2 og vináttuna í leik og starfi en eins og kunnugt er fagnaði Stöð 2 40 ára afmæli á dögunum.
Þá hringdi Hrafnhildur einnig til Spánar, nánar tiltekið La Gomera, og ræddi við Sigurð Hafsteinsson golfkennar og fararstjóra.
Freyr Eyjólfsson mætir með kaffibollann sinn og grúskar í allskonar tónlist frá ýmsum tímum.
Að fara í sánu hefur margs konar jákvæð áhrif á bæði líkama og sál. Þegar líkaminn hitnar eykst hjartslátturinn og blóðæðarnar víkka út, sem líkir eftir léttri hreyfingu. Við fjöllum um finnsku sánuna og 100 ára afmæli Chuck Berry.
Hildur - Draumar.
SYCAMORE TREE - Heart melodies.
Jón Ólafsson - Sunnudagsmorgun.
Sigrún Hjálmtýsdóttir - Stella í orlofi.
TRABANT - Superman.
Rakel Sigurðardóttir, Halldór Eldjárn - Hér.
EGILL ÓLAFSSON - Hér er allt.
Gosi - Ófreskja.
Sálin hans Jóns míns - Þú fullkomnar mig.
CHUCK BERRY - No Particular Place To Go.
Ásgeir Trausti Einarsson - Hunter.
Helgi Björnsson - Allt ljómar.
The Smiths - You just haven't earned it yet baby.
Greiningardeildin, Emilíana Torrini, Bogomil Font - Þú stendur alltaf með mér.
Friðrik Dór Jónsson, SinfoniaNord - Hvað er það versta sem gæti gerst?.
Útvarpsfréttir.
Átján hundruð voru handteknir og yfir fimmtán hundruð verslanir urðu fyrir skemmdum í og eftir mótmælin í Frakklandi í gær. Innanríkisráðherra Frakklands segir skemmdarverkin til rannsóknar.
Íslendingur sem tók þátt í mótmælunum varð vitni að því þegar brotist var inn í ráðhúsið í borginni Angers. Margir skemmdarvargar hafi verið meðal mótmælenda.
Maður sem lést í slysi sem varð á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld var íslenskur og búsettur á Norðurlandi.
Nokkuð var um foktjón í óveðri í gær, og þakplötur og -rennur losnuðu. Gul viðvörun vegna hvassviðris verður í gildi um allt land í dag og fram á kvöld.
Framboð á bótoxmeðferðum eftir óhefðbundnum leiðum hefur aukist. Lyfjastofnun varar eindregið við slíkum meðferðum.
16 kínversk skip voru rekin frá ströndum Taívans í morgun. Stjórnvöld í Taívan segja skipin hafa tekið þátt í fjölþáttaárásum.
Stella í orlofi verður sett á svið í Borgarleikhúsinu á næsta ári. Stóra verkefnið er að stinga sögunni í samband við tíðarandann segir annar höfundur leiksýningarinnar.
og það stefnir í æsispennandi titilbaráttu í Bestu deild kvenna í fótbolta.
Gísli Marteinn spilar tónlist og spjallar við gest sinn.
Gísli Marteinn talar við Karen Björgu Eyfjörð Þorsteinsdóttur um Grenivík, þættina Elma og bækur og grín. Létt lög leikin af plötum.
Bubbi Morthens - Manstu.
A-HA - Take On Me.
LAY LOW - By And By.
Tvíhöfði - Let me be your uncle tonight.
Teitur Magnússon Tónlistarmaður - Barn.
ICEGUYS - Stingið henni í steininn.
DIDDÚ - Stella í orlofi.
MANNAKORN - Sölvi Helgason.

Útvarpsfréttir.
Á Sportrásinni fylgist Doddi með því sem er að gerast í íþróttalífinu hér heima og erlendis. Helstu íþróttafréttir vikunnar og hvað er framundan með góðri aðstoð íþróttadeildar RUV. Ásamt gæða sunnudags tónlist.
Sportrásin, ekki bara fyrir þá sem hafa gaman af sportinu!
Guðmundur Brynjólfsson, fimleikaspekingur kíkti á okkur og sagði okkur allt um þessa fimleikahátíð sem hefur verið í boði á RUV og heldur áfram alla næstu viku.
Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson, íþróttafréttamaður fór yfir það helsta í íþróttum vikunnar.
Tónlist frá útsendingarlogg 2026-10-18
200.000 NAGLBÍTAR - Bless Kex.
BJÖRK - Human Behaviour.
BJÖRGVIN HALLDÓRSSON - Himinn Og Jörð.
BREEDERS - Cannonball.
Adele - Chasing Pavements.
Kristmundur Axel - Bakkus.
FRATELLIS - Chelsea Dagger.
Elín Hall - Is She Pretty?.
CHRISTOPHER CROSS - Sailing.
Fontaines D.C. - Marianne.
Emilíana Torrini, Dickow, Tina - This Fire!.
TEARS FOR FEARS - Sowing the Seeds of Love.

Útvarpsfréttir.

Útvarpsfréttir.
Rokkland er músík-magasín í útvarpi! Þar er fjallað um tónlist líðandi stundar, sögur sagðar af hljómsveitum og tónlistarmönnum og spjallað við óþekkta sem heimsþekkta tónlistarmenn. Þátturinn er aldursforseti Rásar 2 og hefur verið í loftinu í rúma þrjá áratugi.
Umsjónarmaður er Ólafur Páll Gunnarsson
Í Rokklandi vikunnar verður komið við í Færeyjum - Hafnarfirði og Akranesi.
Við byrjum á að spjalla við færeysku tónlistarkonuna Gudrid Hansdottur frá Færeyjum. Hún bjó um tíma á Íslandi, hefur oft spilað á Iceland Airwaves, var að senda frá sér nýja plötu sem heitir Sýrublað (Hundasúra) og hún ætlar að spila á 9 tónleikum hringinn í kringum Íslandi dagana 20. - 29. október.
Við förum Þaðan til Hafnarfjarðar á gítarveislu Bjössa Thor sem fór fram í Ægi 220 helgina 2. og 3. október sl. Með Bjössa spiluðu t.d. Óskar Logi, Brynhildur Oddsdóttir, Krummi Björgvins ofl auk Guðmundur Péturssonar sem skreyttur var með GULLNÖGLINNI sem veitt er árlega gítarleikara sem hefur sett mark sitt á íslenskt tónlistarlíf.
Þriðji viðkomustaðurinn er svo Akranes, en Jónas Björgvinsson er fæddur og alinn upp á Akranesi en býr á Langholstveginum í Reykjavík þar sem hann rekur hljodver.is í bílskúrnum sínum.
Jónas fór til Danmerkur og tók upp plötu þegar hann var rétt rúmlega tvítugur fyrir nokkuð mörgum árum, en svo gerði hann plötu númer 2 árið 2022. Nú er þriðja platan komin, platan Lífsins bók og það eru útgáfutónleikar í Tónabíó 22. október.

Útvarpsfréttir.

Fréttir.

Blönduð tónlist sem fer vel á meðan sunnudagssteikin mallar í ofninum.

Fréttastofa RÚV.

Á sunnudögum opnar Rósa Suðupottinn og býður hlustendum í fjölbreytt tónlistarferðalag þar sem jazz, trip hop, heimstónlist og fleiri stefnur mætast í nútímanum.

Útvarpsfréttir.
Hvernig hljómaði vikan? Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunar á Rás 2, alla laugardaga frá 16-18. Þær rifja upp vikuna, líta í baksýnisspegilinn og skoða smelli fyrri tíma, spá fyrir um hvaða lög eru líkleg til vinsælda. Skemmtilegt spjall og fróðleikur í bland, en fyrst og fremst frábær tónlist.
Umsjón: Ragga Holm og Vilborg Kristín Þrastardóttir.
Þær Ragga Holm og Vilborg fara yfir 30 vinsælustu lög vikunnar í Vinsældalista Rásar 2.
Lagalistinn:
JÓN JÓNSSON & MUGISON & KK - Eitt lítið hrós
STELLA LEFTY - Boston
MICHIGANDER - Freaking Out
ALEX WARREN - Fever dream
STEVE LACY - Oh Yeah
AUÐUR - Eyðimörk! Geneva!
Baksýnisspegilinn: Jamiroquai - Virtual Insanity
SPACESTATION - Watching it happen
KAKTUS EINARSSON & JESSICA WINTER - 3rd Time
MIMRA - Þakka þúsundfalt
Topp tíu:
10. Elín Hall - Is She Pretty?
9. Kristmundur Axel - Bakkus
8. Hausst - Engin önnur
7. U2 - Silencio
6. Jónfrí & Lúpína - Endalaus framtíð
5. Aron Can - Fæddur til þess að vera þinn
4. Ariana Grande - petal
Spákúlan: Ashe - Stop the wedding
3. Friðrik Dór & SinfoniaNord - Hvað er það versta sem gæti gerst?
2. Tina Dico & Emilíana Torrini - This Fire!
1. Hjálmar - Saknaðarljóð
- Endurflutt