Fyrirtækið varð til fyrir tilviljun



  • Prenta
  • Senda frétt

Heimilið var undirlagt af tilraunastarfsemi með heilnæmar íslenskar jurtir og vinir og vandamenn fengu að njóta afrakstursins. Ýmis krem og olíur litu dagsins ljós og hróður þeirra fór vaxandi. Þannig hljómar upphafið að rekstri framleiðslufyrirtækisins Purity Herbs, sem staðsett er á Akureyri.

Purity Herbs var stofnað árið 1994 af Ástu Kristínu Sýrusdóttur og Belganum André Raes en náttúruleg krem og olíur áttu hug hans allan. Eftir hann fluttist til Íslands opnaðist honum nýr heimur þegar hann komst í tæri við villtar og hreinar íslenskar jurtir.

Í dag framleiðir Purity Herbs yfir 55 mismunandi náttúruvörur sem ætlaðar eru fyrir alla aldurshópa sem og allar húðgerðir. Fyrirtækið selur vörur sínar á innlendum sem og erlendum mörkuðum víða um heim - og framkvæmdastjóri fyrirtækisins er bjartsýnn á framtíðina.

Í þættinum Bankað upp á heimsækir Erla Tryggvadóttir heimsækir vinnustaði af ýmsum stærðum og gerðum.

Erla bankar upp á hjá Purity Herbs á Akureyri í dag kl. 16.05.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku