Viðurkennir fjöldamorð á Grænlandi

22 ára gamall karlmaður játaði í dag að hafa myrt þrjá og reynt að myrða fjóra til viðbótar á aðfaranótt miðvikudags í þorpinu Nutaarmiut á norðvestur Grænlandi. Ekki er vitað hvað tilefni árásanna var.

Maðurinn virðist hreinlega hafa sturlast og gengið berserksgang, berjandi fólk í höfuðið með hamri. Hann myrti tvær konur, 75 og 31 árs gamlar, og átta ára gamla stúlku. Þær munu hafa verið úr sömu fjölskyldu. Tveir karlmenn hlutu alvarlega áverka í sömu árás en ein kona og tveggja ára barn hennar náðu að flýja og sluppu með skrámur.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Flokkar

Erlent

Tilkynna um bilaða upptöku