Ingólfur Þórarins og Axel Árna

Ingólfur Þórarinsson, eða Ingó, kemur frá Selfossi en er búsettur í Reykjavík. Ingó hefur verið með vinsælli tónlistarmönnum landsins undanfarin ár, en sveit hans Veðurguðirnir hefur átt hvert lagið á fætur öðru á vinsældarlistum landsins. Ingó samdi næstum öll lög á plötunni Góðar stundir, sem Veðurguðirnir sendu frá sér árið 2009. Árið 2011 kom út sólóplata Ingós sem heitir einfaldlega Ingó.
Þetta er í annað sinn sem Ingó tekur þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins, en þó í fyrsta sinn sem lagahöfundur. Árið 2009 söng hann lag Hallgríms Óskarssonar, Undir regnbogann, og hlotnaðist annað sætið á eftir Jóhönnu Guðrúnu. 
Auk þess að vera tónlistarmaður í fullu starfi er Ingó liðtækur í fótbolta. Hann lék meðal annars í úrvalsdeildinni sumarið 2010 með heimaliði sínu, Selfossi.

 

Axel „Flex“ Árnason hóf ferilinn í tónlistarbransanum ungur að árum í heimabæ sínum Akureyri. Þar nam hann slagverksleik og síðar trommuleik. Axel lék meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, áður en hann stofnaði hljómsveitina 200.000 naglbítar árið 1995. Hljómsveitin hlaut þriðja sæti í Músíktilraunum árið 1997 og í framhaldi af því plötusamning. Í kjölfarið fékk Axel áhuga á upptökustjórn og hóf störf hjá Stúdíó Sýrlandi árið 2000. Frá þeim tíma hefur mikið vatn runnið til sjávar og Axel unnið með stærstu nöfnunum í íslenskri tónlist. Nægir þar að nefna Quarashi, Pál Óskar, Bubba, Sálina, Diktu meðal annarra. Að auki hefur hann unnið með erlendum listamönnum. Axel samdi tónlist við leikritið Harún og sagnahafið, sem fékk Grímuverðlaunin árið 2008 fyrir besta útvarpsleikritið. Hann hefur einnig samið tónlist fyrir auglýsingar. Árið 2009 opnaði Axel sitt eigið hljóðver, Stúdíó ReFlex, við höfnina í Reykjavík. Axel keppir nú í fyrsta sinn sem lagahöfundur í Söngvakeppni Sjónvarpsins. 

Hljómsveitin Blár Ópal mun flytja lag þeirra Ingós og Axels, Stattu upp, laugardagskvöldið 14. janúar. 

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Til baka

Lögin eru einungis til hlustunar á vefnum. Opinber flutningur er óheimill.