Greta Salóme Stefánsdóttir

Greta Salóme Stefánsdóttir er fædd árið 1986 og uppalin í Mosfellsfæ.
Líf hennar tók stefnu í átt að tónlistinni þegar hún var aðeins fjögurra ára, en þá hóf hún nám á fiðlu. Árið 2008 útskrifaðist Greta Salóme með bachelorgráðu í fiðluleik frá Listaháskóla Íslands.
Óhætt er að segja að daglegt líf Gretu Salóme snúist um tónlist. Hún starfar sem fiðluleikari í fullu starfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk þess sem hún spilar í margvíslegum tónlistarverkefnum. Greta Salóme lætur sér það þó ekki nægja því hún er á síðustu önn í meistaranámi í tónlist við Listaháskóla Íslands. Hún stundar crossfit og aðra hreyfingu samhliða þessu, til að halda sér gangandi, að eigin sögn.
Greta Salome hefur samið tónlist í nokkur ár, en lét fyrst að sér kveða á opinberum vettvangi árið 2008. Þá fór lag hennar, Betlehem, með sigur af hólmi í jólalagakeppni Rásar 2. Það hvatti hana áfram til að semja af meiri alvöru.
Greta Salóme á tvö lög í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár, en þetta er í fyrsta sinn sem hún tekur þátt sem lagahöfundur og flytjandi. Áður hefur hún verið hljóðfæraleikari á sviði.
Hún flytur sjálf lag sitt, Mundu eftir mér, ásamt Jóni Jósepi Snæbjörnssyni laugardagskvöldið 14. janúar.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Lögin eru einungis til hlustunar á vefnum. Opinber flutningur er óheimill.
