Grindavík vann fyrir norðan

Tindastóll tapaði á heimavelli fyrir Grindavík - Mynd: Eva Björk

Fimmtánda umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik hófst í kvöld með fjórum leikjum.

Þór Þorlákshöfn tók á móti Njarðvík og voru það heimamenn sem unnu átján stiga sigur 84-66. Blagoj Janev skoraði 23 stig fyrir Þór og tók 9 fráköst en Travis Holmes var með 16 stig og 5 fráköst fyrir Njarðvík.

Fjölnir vann Val með tíu stigum 83-73 á Hlíðarenda. Alexander Dungal var með 18 stig og 6 fráköst fyrir Val og Hlynur Logi Víkingsson 17 stig og 15 fráköst en Arnþór Freyr Guðmundsson skoraði 27 stig fyrir Fjölni og tók 6 fráköst.

Grindavík gerði góða ferð norður á Sauðárkrók og lagði heimamenn í Tindastól með níu stigum 105-96.  Curtis Allen skoraði 23 stig fyrir heimamenn og tók 5 fráköst en  Giordan Watson var með 40 stig og J'Nathan Bullock 22 stig og 7 fráköst.

Þá vann Snæfell góðan heimasigur á ÍR 97-74 í Stykkishólmi. Quincy Hankins-Cole var atkvæðamestur í liði heimamanna með 19 stig og 16 fráköst en Hjalti Friðriksson skoraði 18 stig fyrir ÍR og tók 6 fráköst.

Umferðinni lýkur á morgun með leik KR og Stjörnunnar í Vesturbæ og Hauka og Keflvíkinga í Hafnarfirði.

Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is

Tilkynna um bilaða upptöku