Greta Salóme og Jónsi

Jónsi er þaulvanur flytjandi í Söngvakeppni Sjónvarpsins, en ekki Greta. Hún býst fastlega við að verða meira Eurovisionnörd eftir þetta ævintýri.
Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi, hefur löngum verið kenndur við hljómsveit sína Í svörtum fötum. Hljómsveitin sló í gegn árið 2001 með laginu Nakinn og varð fljótt ein vinsælasta hljómsveit landsins. Kraftmikil rödd og lífleg sviðsframkoma er aðalsmerki Jónsa og átti það sinn þátt í velgengni hljómsveitarinnar, sem státar meðal annars af tveimur gullplötum.
Síðar gaf Jónsi út sólóplötu, sem ber nafn hans sjálfs. Jónsi lék Danny Zuko í söngleiknum Grease í Borgarleikhúsinu árið 2003 við gríðarlegar vinsældir.
Ári síðar fór Jónsi fyrir Íslands hönd í Eurovision keppnina í Istanbúl í Tyrklandi, þar sem hann söng lag Sveins Rúnars Sigurðssonar, Heaven. Það hafnaði í 19. sæti. Árið 2007 tók Jónsi aftur þátt í Söngvakeppninni með lagið Segðu mér eftir Trausta Bjarnason.
Jónsi flytur lagið Mundu eftir mér ásamt höfundi lagsins, Gretu Salóme Stefánsdóttur.
Greta Salóme Stefánsdóttir er fædd árið 1986 og uppalin í Mosfellsfæ. Þetta er í fyrsta sinn sem Greta Salóme tekur þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins sem flytjandi og lagahöfundur.
Óhætt er að segja að daglegt líf Gretu Salóme snúist um tónlist. Hún starfar sem fiðluleikari í fullu starfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands, auk þess sem hún spilar í margvíslegum tónlistarverkefnum.
Greta Salóme lætur sér það þó ekki nægja því hún er á síðustu önn í meistaranámi í tónlist við Listaháskóla Íslands. Hún stundar crossfit og aðra hreyfingu samhliða þessu, til að halda sér gangandi, að eigin sögn.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Lögin eru einungis til hlustunar á vefnum. Opinber flutningur er óheimill.
