15 tonn af metamfetamíni haldlögð
Fyrst birt: 09.02.2012 22:05, Síðast uppfært: 09.02.2012 22:05

Mexíkóski herinn lagði hald á meira en 15 tonn af metamfetamíni í héraðinu Jalisco í dag. Aldrei áður hefur fundist viðlíka magn af þessu fíkniefni.
Einnig fannst mikið af efnum sem notuð eru við framleiðslu metamfetamíns og verksmiðja þar sem framleiðslan fór fram. Enginn hefur hins vegar verið handtekinn. Talið er að glæpagengi, sem áður einbeittu sér að því að smygla kókaíni frá Suður Ameríku, séu í auknum mæli farin að framleiða sitt eigið metamfetamín og flytja það til Bandaríkjanna.
Ertu með athugasemd vegna fréttarinnar? Sendu á frettir@ruv.is
Flokkar
ErlentTilkynna um bilaða upptöku







